Davíð efstur þegar tvær umferðir eru eftir



Sjöunda umferð Haustmótsins var tefld í kvöld.  Í a-flokki lagði Davíð Kjartansson Sævar Bjarnason og heldur því efsta sætinu með 5,5 vinning.

Í b-flokki er Bjarni Jens Kristinsson efstur sem fyrr með 5,5 vinning, vinningi meira en næstu menn.

Ólafur Gísli Jónsson hefur náð forystu í c-flokki eftir sigur í dag á meðan Páll Sigurðsson beið lægri hlut gegn sínum andstæðingi.

Í d-flokki hefur hinn ungi og efnilegi, Hörður Aron Hauksson, náð efsta sætinu eftir sigur á Rafni Jónssyni og í e-flokki er Páll Andrason sem fyrr með vinningsforskot á næstu keppendur.

Áttunda umferð fer fram á miðvikudag kl. 19.30 og eru áhorfendur velkomnir.

  • Chess-Results
  • Skákir mótsins