Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 25. febrúar í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til ca. kl. 17. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10+5). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð ...
Lesa meira »Barna- og unglingafréttir
Bikarsyrpa TR heldur áfram um næstu helgi
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað fjórða árið í röð. Líkt og síðastliðinn vetur verða mót syrpunnar fimm talsins og verða tefldar sjö umferðir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR að Faxafeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst ...
Lesa meira »Hilmir Freyr Norðurlandameistari!
Hilmir Freyr Heimisson varð um helgina Norðurlandameistari í skák þegar hann varð efstur í sínum aldursflokki á Norðurlandamótinu sem fór fram í Finnlandi. Hilmir keppti í næstelsta aldursflokknum, flokki ungmenna fæddum 2001-2002, en hann var fimmti í stigaröð keppenda. Hilmir hlaut 5 vinninga í skákunum sex og var hálfum vinningi á undan næsta keppanda, þeim stigahæsta í flokknum. Sannarlega glæsilegur ...
Lesa meira »Norðurlandamót ungmenna 2018 hafið
Í morgun hófst Norðurlandamót ungmenna í skák en það fer að þessu sinn fram í Vierumäki, Finnlandi. Ísland á tíu fulltrúa í mótinu en þar af koma fimm úr Taflfélagi Reykjavíkur, þau Hilmir Freyr Heimisson, Aron Þór Mai, Alexander Oliver Mai, Róbert Luu og Batel Goitom Haile. Tefldar eru sex umferðir í fimm aldursflokkum og eru tímamörk 90 mínútur fyrir ...
Lesa meira »Mót 4 í Bikarsyrpu TR fer fram helgina 16.-18. febrúar
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað fjórða árið í röð. Líkt og síðastliðinn vetur verða mót syrpunnar fimm talsins og verða tefldar sjö umferðir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR að Faxafeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst ...
Lesa meira »Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst 12. febrúar með keppni 1.-3. bekkjar
Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst í húsnæði TR að Faxafeni 12 mánudaginn 12. febrúar kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkja. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt að þessu sinni; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram viku seinna, mánudaginn 19. febrúar. Tefldar verða ...
Lesa meira »Góð ferð Benedikts til Svíaríkis á Rilton Cup
Um áramótin fór ég á skemmtilegt skákmót sem nefnist Rilton Cup og fer fram árlega í Stokkhólmi. Þetta var mjög skemmtilegt mót og svo er Stokkhólmur falleg borg þar sem margt er hægt að skoða og nýttum við pabbi okkur það en ég leyfði honum að koma með mér í ferðina. Ég tefldi í flokki skákmanna með minna en 1800 ...
Lesa meira »Laugardagsmót barna flesta laugardaga á vorönn kl.14-16
Laugardagsmót barna verða haldin í skáksal Taflfélags Reykjavíkur nær alla laugardaga á vorönn klukkan 14:00 – 16:00. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 5+3. Laugardagsmótin eru hugsuð fyrir stráka og stelpur á grunnskólaaldri, sem og elstu börn leikskóla, og er börnum frá öðrum taflfélögum velkomið að slást í hópinn og tefla með. Laugardagsmótin verða reiknuð til hraðskákstiga. Enginn aðgangseyrir er ...
Lesa meira »Kennsla á vorönn hefst laugardaginn 6.janúar
Kennsla á vorönn 2018 hefst laugardaginn 6.janúar og verður stundataflan óbreytt frá síðastliðnu hausti. Sem fyrr er þjálfarateymi félagsins skipað mörgum af reynslumestu skákkennurum landsins. Skákæfingar Taflfélags Reykjavíkur eru fjölbreyttar og sérstaklega hannaðar til þess að mæta þörfum sem flestra áhugasamra skákbarna og unglinga. Á æfingum félagsins fá nemendur markvissa kennslu og persónulega leiðsögn sem nýtist þeim sem grunnur að framförum ...
Lesa meira »Taflfélag Reykjavíkur og Skákdeild Breiðabliks & Bolungarvíkur sameiginlegir Íslandsmeistarar unglingasveita
Eitthvert hið dramatískasta Íslandsmót unglingasveita frá upphafi fór fram sunnudaginn 10. desember í Garðaskóla, Garðabæ, en mótshaldari var Taflfélag Garðabæjar. Umfjöllun um mótið birtist fyrst nú þar sem endurreikna þurfti lokastöðuna en A-lið Taflfélags Reykjavíkur (TR) og A-lið Breiðabliks & Bolungarvíkur (B&B) komu hnífjöfn í mark. Eftir allnokkur fundarhöld og góða og faglega umræðu var það sameiginleg niðurstaða allra hlutaðeigandi ...
Lesa meira »Mikið um dýrðir á Jólaæfingu TR
Í gær var haldin hin árlega jólaskákæfing sem er um leið uppskeruhátíð haustannarinnar hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Börnin mynduðu lið með fjölskyldumeðlim eða vin og tefldu sex umferðir í tveggja manna liðum. Reyndir sem óreyndir skákmenn spreyttu sig og vék keppnisharkan fyrir jólaandanum. Á milli umferða voru veitt verðlaun fyrir ástundun á haustönninni og því áttu börnin sviðsljósið. Mörg skemmtileg liðanöfn ...
Lesa meira »Háteigsskóli, Rimaskóli og Ölduselsskóli sigurvegarar á Jólaskákmóti grunnskóla Reykjavíkur
Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkurborgar var haldið sunnudaginn 3.desember í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Sem fyrr var mótið samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Alls tefldu 39 skáksveitir í mótinu sem var þrískipt að þessu sinni; 1-3.bekkur, 4-7.bekkur og 8-10.bekkur. Í öllum keppnisflokkum voru tefldar 6 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hvern keppanda auk þess sem 3 sekúndur bættust við eftir ...
Lesa meira »Jólaskákæfing TR næsta laugardag kl.13
Hin árlega Jólaskákæfing verður haldin laugardaginn 9.desember kl.13-16. Æfingin markar lok haustannarinnar og er því jafnframt uppskeruhátíð barnanna sem lagt hafa hart að sér við taflborðin undanfarnar vikur og mánuði. Veitt verða verðlaun fyrir ástundun á haustönn í byrjendaflokki, stúlknaflokki, framhaldsflokki og á opnu laugardagsæfingunni. Öll börn og unglingar úr öllum skákhópum TR eru velkomin á þessa sameiginlegu jólaskákæfingu. Æfingin er ...
Lesa meira »Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 3.desember
Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur verður haldið í húsnæði TR að Faxafeni 12 sunnudaginn 3.desember. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt að þessu sinni; 1.-3.bekkur, 4.-7.bekkur og 8.-10 bekkur. Tefldar verða 6 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir hvern leik (5+3). Allir grunnskólar ...
Lesa meira »Skákæfingar helgarinnar 11.-12.nóvember
Alþjóðlega Norðurljósamótið verður haldið í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur dagana 10.-15.nóvember. Af þeim sökum fellur niður skákæfing laugardaginn 11.nóvember kl.14-16. Aðrar skákæfingar verða á hefðbundnum tímum.
Lesa meira »Batel og Kristján Dagur unglingameistarar TR
Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fór fram í dag, sunnudaginn 5. nóvember, í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Keppt var í tveimur flokkum, opnum flokki og stúlknaflokki og voru 7 umferðir tefldar með umhugsunartímanum 10 + 5 (10 mín. og 5 sekúndur fyrir hvern leik). Skákmótið var opið fyrir keppendur 15 ára og yngri og voru þátttakendurnir 24, ...
Lesa meira »Skákæfingar um helgina
Það er mikið um að vera í Skákhöllinni þessa helgina. Á laugardag fer fram hið geysivinsæla skákmót Æskan og ellin, og á sunnudag er haldið Barna- og unglingameistaramót Taflfélags Reykjavíkur. Bæði skákmótin hefjast kl.13. Af þeim sökum fellur niður laugardagsæfingin kl.14-16. Allar aðrar skákæfingar eru á sínum hefðbundnu tímum.
Lesa meira »Barna- og unglingameistaramót TR fer fram á sunnudag
Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 5. nóvember í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13. Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 10+5 (10 mínútur á mann auk 5 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til atskákstiga. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu ...
Lesa meira »Æskan og ellin XIV -þar sem kynslóðirnar mætast- fer fram á laugardag
Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN XIV., þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í 14. sinn laugardaginn 4. nóvember í Skákhöllinni í Faxafeni. TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu með stuðningi TOPPFISKS ehf – leiðandi fyrirtækis í ferskum og fyrstum sjávarafurðum – standa saman að mótshaldinu sem hefur eflst mjög að öllu umfangi og vinsældum með árunum. Fyrstu 9 ...
Lesa meira »Fjórir efstir og jafnir í Bikarsyrpu helgarinnar
Blikapilturinn knái, Gunnar Erik Guðmundsson, sigraði í þriðja móti Bikarsyrpu TR sem fram fór um nýliðna helgi. Eftir æsispennandi lokasprett þar sem síðustu skákinni lauk ekki fyrr en að ganga sjö að kveldi sunnudags varð úr að hvorki fleiri né færri en fjórir keppendur komu jafnir í mark með 5,5 vinning af sjö mögulegum. Ásamt Gunnari voru það Benedikt Briem, ...
Lesa meira »