28 þátttakendur tefla í TR á miðvikudagskvöldum. Fyrirfram eru Róbert Lagerman, Þorvarður Ólafsson og Lenka Ptacnikova sigurstranglegust. Fyrstu tvær umferðirnar voru meira eða minna eftir bókinni. Samt vann Jóhann Jónsson Kjartan Ingvarsson í fyrstu umferð. Jóhann hefur ekki sést við kappskáksborðið í 30-40 ár. Hann vann sannfærandi sigur í taktískri skák. Margar athyglisverðar skákir tefldust í 3. umferð. Á fyrsta ...
Lesa meira »Monthly Archives: February 2020
Bikarsyrpa TR: Mót 5 fer fram helgina 6.– 8. mars
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað sjötta árið í röð. Líkt og síðastliðinn vetur verða mót syrpunnar fimm talsins og verða tefldar sjö umferðir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR að Faxafeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að ...
Lesa meira »Aasef Alashtar og Jon Olav Fivelstad öflugir í atskákinni!
Ekki náðist að gera síðustu tveimur atskákmótunum sem voru á fimmtudagana 13. og 20. feb. skil í fréttum hér vegna tímabundinna tæknilegra örðugleika. Skemmst er frá því að segja að Frakkinn geðþekki Aasef Alashtar rauf sigurgöngu Jon Olavs Fivelstad sem hafði byrjað 2020 á nokkrum snörpum sigrum og vann bæði mótin. Lokastöðu, sem og einstök úrslit á fyrra mótinu má ...
Lesa meira »BRIM Skákmótaröðin 2020
Taflfélag Reykjavíkur kynnir með stolti, í samstarfi með þremur félögum, Skákfélagi Akureyrar, Skákfélagi Selfoss og nágrennis og Skákfélaginu Hugin, BRIM Skákmótaröðina 2020! Haldin verða sex helgarskákmót yfir árið, þrjú í TR, eitt á Norðurlandi, eitt á Selfossi og eitt á Húsavík. Á föstudegi verða tefldar fjórar atskákir, á laugardegi tvær kappskákir og á sunnudegi ein kappskák. Brim er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar ...
Lesa meira »Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld
Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Mæti 20 skákmenn til leiks eða fleiri, er mótinu skipt fyrir miðju í tvo flokka en annars er teflt í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 ...
Lesa meira »Batel Goitom Haile Unglingameistari Reykjavíkur 2020 – Iðunn Helgadóttir Stúlknameistari
Unglingameistaramót Reykjavíkur sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur fór fram í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur sunnudaginn 23. febrúar. Mótið var opið fyrir börn á grunnskólaaldri. Þrenn verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum svo og aldursflokkaverðlaun í hvorum flokki fyrir sig, fyrir hvert ár frá 2004 til 2014. Þau sem eru búsett í Reykjavík eða eru félagar í reykvískum taflfélögum tefldu ...
Lesa meira »Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram á sunnudaginn
Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 23. febrúar í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til kl.17. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Mótið er opið öllum börnum og ...
Lesa meira »Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 23. febrúar
Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 23. febrúar í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til kl.17. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. Mótið er opið öllum börnum og ...
Lesa meira »Jon Olav efstur á atskákmóti hjá TR
Jon Olav Fivelstad, stjórnarmaður í Taflfélagi Reykjavíkur, sigraði á atskákmótinu þann 6. febrúar síðastliðinn með þrjá vinninga af þremur. Skákstjóra varð örlítið á í messunni þegar hann setti 6 manna mót upp í swiss kerfinu, en þá vildi kerfið ekki para í fjórðu umferð, betra hefði verið að allir tefldu við alla með aðeins styttri tímamörkum. En í staðinn var ...
Lesa meira »Skákmót öðlinga hefst í kvöld kl. 19.30
Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 12. febrúar kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Haraldur Haraldsson. Dagskrá: 1. umferð miðvikudag 12. febrúar kl. 19.30 2. umferð miðvikudag 19. febrúar kl. 19.30 3. umferð miðvikudag 26. febrúar kl. 19.30 ...
Lesa meira »Óttar Örn sigraði á fjórða móti Bikarsyrpunnar
Óttar Örn Bergmann kom fyrstur í mark þegar fjórða mót Bikarsyrpu TR fór fram um nýliðna helgi. Óttar hlaut 6 vinninga úr skákunum sjö en í 2.-3. sæti með 5,5 vinning urðu Iðunn Helgadóttir og Matthías Björgvin Kjartansson. Iðunn hlaut 2. sætið eftir útreikning oddastiga, og þá varð hún efst stúlkna og fékk því stúlknaverðlaun mótsins. Þrír keppendur komu ...
Lesa meira »Sigurbjörn Björnsson Skákmeistari Reykjavíkur 2020 með fullu húsi!
Það sem stendur upp úr í Skákþingi Reykjavíkur 2020 er að sjálfsögðu sögulegur sigur Fide-meistarans Sigurbjörns J. Björnssonar en hann vann allar skákir sínar, níu að tölu. Samkvæmt heimildum er þetta fjórða sinn sem mótið vinnst með fullu húsi. Árið 1960 vann Friðrik Ólafsson úrslitakeppnina með fullu húsi, sjö af sjö. Björn Þorsteinsson vann með níu af níu árið 1964 og ...
Lesa meira »Rimaskóli & Ölduselsskóli Reykjavíkurmeistarar grunnskóla
Stúlknasveit Rimaskóla kom fyrst í mark í keppni 1.-3. bekkja á Reykjavíkurmóti grunnskóla og sigraði því í opnum flokki og stúlknaflokki. Í keppni 4.-7. bekkja sigraði A-sveit Rimaskóla í opnum flokki og Rimaskóli var einnig með efstu stúlknasveitina. Í keppni 8.-10. bekkja sigraði Ölduselsskóli en engin stúlknasveit tók þátt. Mótið fór fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur mánudaginn 3. febrúar og ...
Lesa meira »Atskákmót hjá TR í kvöld
Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Mæti 20 skákmenn til leiks eða fleiri, er mótinu skipt fyrir miðju í tvo flokka en annars er teflt í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 ...
Lesa meira »Jón Eggert Hallsson með öruggan sigur á atskákmóti hjá TR
Þau voru áberandi endatöflin á atskákmótinu í Faxafeninu á fimmtudaginn. Þannig missti Jón Eggert Hallsson rétt svo af því að vinna með fullu húsi, þegar Helgi Hauksson bjargaði vonlítilli stöðu í jafntefli í síðustu umferðinni. Arnar Ingi Njarðarson bjargaði líka koltöpuðu endatafli gegn Adam Omarssyni í jafntefli með því að skilja þann síðarnefnda eftir með biskup og „vitlaust“ h-peð. Eftir ...
Lesa meira »Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram í dag
Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 miðvikudaginn 5. febrúar og hefst taflið kl.19:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er opið öllum. Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á ...
Lesa meira »Bikarsyrpa TR: Mót 4 hefst á föstudaginn
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað sjötta árið í röð. Líkt og síðastliðinn vetur verða mót syrpunnar fimm talsins og verða tefldar sjö umferðir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR að Faxafeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að ...
Lesa meira »Sigurbjörn Björnsson er Skákmeistari Reykjavíkur 2020
Sigurbjörn Björnsson er skákmeistari Reykjavíkur 2020 þegar einni umferð er ólokið. Hann vann sínu áttundu skák í röð síðastliðinn sunnudag, en þá lá Davíð Kjartansson í valnum. Smám saman náði Sigurbjörn að tína upp veik peð Davíðs og þegar uppskitpi á riddurum lágu í loftinu með töpuðu hróksendatafli í framhaldinu, kastaði Davíð handklæðinu. Sigurbjörn hefur einu sinni áður orðið Skákmeistari ...
Lesa meira »
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins