Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram 3. apríl!



Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram 3. apríl.

barnaungl

Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 3. apríl í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til kl.17 c.a. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.

Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2006 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum sem og í stúlknaflokknum. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í öllum árgöngum í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum), elsti árgangurinn er 2006 og yngsti árgangurinn er 2016 og yngri. Ef þátttakendur í stúlknaflokki eru færri en 7 munu allir þátttakendur tefla saman í opnum flokki. 

Nafnbótina Unglingameistari Reykjavíkur 2022 hlýtur sá keppandi sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.  Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2022 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.

Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Kristján Dagur Jónsson og Iðunn Helgadóttir. Nánari upplýsingar um mótið í fyrra má finna hér. Skákstjórar verða Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir og Torfi Leósson. Mælt er með að keppendur taki með sér nesti þar sem mótið tekur tæpa fjóra klukkutíma. 

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur