Undanrásir Barna-Blitz hjá TR 24.febrúar kl.14-16



Undankeppni fyrir Reykjavík Open Barna-Blitz verður haldin hjá Taflfélagi Reykjavíkur laugardaginn 24.febrúar kl.14-16. Undankeppnin verður hluti af hefðbundnu Laugardagsmóti TR sem haldin eru flesta laugardaga á vorönn. Þrjú efstu börnin fædd 2005 eða síðar fá sæti í úrslitum sem tefld verða í Hörpu 11.mars.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 5+3 (5 mínútur auk 3 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik).