Viðureign Skákfélags Akureyrar og Taflfélags Reykjavíkur í 8-liða úrslitum í Hraðskákkeppni taflfélaga fór fram í húsnæði T.R. í kvöld. Í hálfleik var staðan jöfn 18-18. Síðari hlutinn var æsispennandi, því eftir áttundu umferð skildi aðeins einn vinningur liðin að (S.A. 23,5 – T.R. 24,5). En T.R.-ingar geystust þá fram á völlinn í sterkri liðsheild og unnu næstu þrjár umferðirnar afgerandi 13,5 gegn 4,5 vinning Akureyringa.
Lokastaðan varð því T.R. 41v. – S.A. 31 v.
Frammistaða einstakra skákmanna varð sem hér segir:
Skákfélag Akureyrar
- Jón Garðar Viðarsson 7/12
- Halldór Brynjar Halldórsson 6,5/12
- Stefán Bergsson 6,5/12
- Áskell Örn Kárason 4,5/11
- Gylfi Þórhallsson 4,5/12
- Þór Valtýsson 1/2
- Jón Þ. Þór 1/11
Taflfélag Reykjavíkur:
- Arnar E. Gunnarsson 10/12
- Daði Ómarsson 9/12
- Snorri G. Bergsson 8/11
- Ríkharður Sveinsson 7/12
- Júlíus L. Friðjónsson 6/12
- Björn Jónsson 1/11
- Halldór Pálsson 0/2