Haustönn Taflfélags Reykjavíkur hefst formlega laugardaginn 2.september en þá byrja byrjendaæfingar, stúlknaæfing og almenna æfingin. Framhaldsæfingar hefjast þriðjudaginn 29.ágúst. Afreksæfingar eru hins vegar þegar hafnar. Haustönninni lýkur með jólahátíð barna 9.desember.
Æfingarnar eru fjölbreyttar sem fyrr og sérstaklega hannaðar til þess að mæta þörfum sem flestra áhugasamra skákbarna. Á æfingum félagsins fá börnin markvissa kennslu og persónulega leiðsögn sem nýtist þeim sem grunnur að framförum í skáklistinni. Æfingarnar verða sem fyrr flokkaskiptar eftir getu og aldri.
Æfingagjöld á haustönninni haldast óbreytt á milli ára. Gjald fyrir æfingahópa sem hittast einu sinni í viku er 8.000kr. Gjald fyrir æfingahópa sem hittast tvisvar í viku er 14.000kr. Líkt og áður er veittur systkinaafsláttur í formi 50% afsláttar fyrir annað barnið, en þriðja barnið æfir frítt. Börn geta sem fyrr tekið þátt í opinni laugardagsæfingu (kl.14-16) án endurgjalds.
Mikilvægt er að skrá þátttakendur á æfingarnar með því að fylla út skráningarform sem finna má á vef félagsins. Öllum er þó frjálst að prófa eina æfingu án skuldbindingar. Foreldrar geta nýtt sér Frístundakort Reykjavíkurborgar ef börnin/unglingarnar eru með lögheimili í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar sem og leiðbeiningar um hvaða æfingar henta hverjum og einum veita skákþjálfarar félagsins.
Á haustönn 2017 er boðið upp á sex mismunandi skákæfingar:
–
Manngangskennsla: Lau kl.10:40-11:00 (frítt) – Hefst 2.september.
Á þessari æfingu verður eingöngu manngangurinn kenndur. Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem vilja læra mannganginn frá grunni eða vilja læra tiltekna þætti manngangsins betur. Börnin munu læra að hreyfa alla mennina auk þess sem þau læra reglur sem gilda um hrókeringu og framhjáhlaup. Þegar barn hefur náð góðum tökum á mannganginum að mati skákþjálfara þá er það tilbúið að taka næsta skref sem er Byrjendaæfing. Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).
Byrjendaæfing: Lau kl.11:15-12:15 (8.000kr) – Hefst 2.september.
Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem kunna allan mannganginn og þyrstir í að læra meira og ná betri tökum á skáklistinni. Á æfingunni tefla börnin hvert við annað í bland við létta kennslu. Börnin læra almennar reglur sem gilda á skákmótum og þau venjast því að tefla með klukku. Auk þess munu börnin læra grunnatriði á borð við liðsskipan og einföld mát. Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).
Stúlknaæfing: Lau kl.12:30-13:45 (8.000kr) – Hefst 2.september.
Stúlknaæfingin hefur fest sig í sessi sem ein fjölmennasta skákæfing TR. Fyrirkomulag æfingarinnar er óbreytt frá því sem verið hefur síðustu misseri og eru allar stúlkur á grunnskólaaldri velkomnar að slást í hópinn. Á skákæfingunum er lögð áhersla á ýmis taktísk atriði og mátstöður í miðtafli og endatafli. Lögð er áhersla á að stelpurnar þrói með sér skilning á stöðuuppbyggingu, svo sem liðsskipan í byrjun, úrvinnslu í miðtafli og læri að ljúka skákinni með máti. Tímarnir innihalda sitthvað af öllu þessu: innlögn og umræður, skákþrautir og taflmennsku, sköpun og gleði. Umsjón með æfingunum hefur Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (sími: 862 6290).
Laugardagsæfing: Lau kl.14:00-16:00 (frítt) – Hefst 2.september.
Laugardagsæfingar TR hafa verið flaggskip félagsins undanfarna áratugi. Á þessum æfingum er sett upp skákmót og tefla börnin allan tímann. Æfingin er fyrir bæði stráka og stelpur á grunnskólaaldri, sem og elstu börn leikskóla, og eru börn frá öðrum taflfélögum hjartanlega velkomin á þessa æfingu. Á æfingunni fá börnin leiðsögn og þjálfun í því að tefla í skákmóti og læra þannig helstu skákreglur auk þess sem þau læra smám saman þá siði og venjur sem ríkja í skáksal. Þessi mót verða reiknuð til skákstiga. Æfingin er án endurgjalds. Umsjón með æfingunum hefur Gauti Páll Jónsson (sími: 691 9937).
Framhaldsæfing: Þri kl.17:00-18:30 & Sun kl.10:30-12:00 (14.000kr) – Hefst 29.ágúst.
Framhaldsæfingin verður með örlítið breyttu sniði frá því sem var síðastliðið vor. Á haustönn verður einn framhaldshópur sem æfir tvisvar í viku. Æfingunni er ætlað að koma til móts við þau skákbörn TR, af báðum kynjum, sem hafa mikinn áhuga á að taka framförum í skáklistinni. Þessar æfingar eru því hugsaðar fyrir börn sem hafa að lágmarki reynslu af að tefla með klukku og kunna einföld mát líkt og að máta með kóngi og hrók gegn stökum kóngi. Þessar æfingar eru einnig ætlaðar þeim börnum sem eru lengra komin og tefla reglulega í kappskákmótum. Æfingarnar eru á sunnudögum og þriðjudögum. Umsjón með æfingunum hefur Björn Ívar Karlsson (sími: 692 1655).
Afreksæfing: Lau kl.16:10-17:40 & Fim kl.17:00-18:30 (14.000kr)
Afreksæfingin verður með hefðbundnu sniði frá því sem verið hefur og er æfingin hugsuð fyrir stigahæstu skákbörn og unglinga TR af báðum kynjum. Á þessum æfingum er mikil áhersla lögð á byrjanafræði og krefjast æfingarnar þess að nemendur geti unnið sjálfstætt. Æft er tvisvar í viku, á fimmtudögum og laugardögum. Umsjón með æfingunum hefur Daði Ómarsson (sími: 615 4273).