Lokaskemmtikvöld starfsársins hjá Taflfélagi Reykjavíkur fer fram á föstudagskvöld og hefst klukkan 20.00 Nú er mikið er undir, enda leiða saman hesta sína sigurvegarar allra skemmtikvöldanna í vetur í epískri baráttu um titilinn Skemmtikvöldakóngurinn 2015.
En það verður einnig nóg af taflmennsku fyrir alla þá skákmenn sem ekki höfðu erindi sem erfiði við að tryggja sér sæti í úrslitunum, því samhliða kóngakeppninni verður keppt í áskorendaflokki sem er öllum opinn.
Í kóngaflokknum eiga keppnisrétt eftirtaldir sigurvegarar vetrarins.
Íslandmeistarar í Fischer random liðakeppni 2014 – TR (Keppandi að eigin vali úr sigurliðinu)
Mórinn 2014 – GM Hannes Hlífar Stefánsson
Karlöndin 2014 – GM Stefán Kristjánsson
Úlfurinn 2014 – Guðni Stefán Pétursson
Frikkinn 2015 – IM Jón Viktor Gunnarsson
Gagginn 2015 – Gagnfræðaskóli Akureyrar (keppandi að eigin vali úr því merka sigurliði)
Íslandsmeistarinn í Fischer Random 2015 – Björn Ívar Karlsson
Í flokknum tefla allir við alla tvöfalda umferð (12 skákir)
Í áskorendaflokki verða tefldar 12 umferðir eftir svissnesku kerfi.
Upplýsingar og dagskrá:
- Kvöldið hefst kl. 20.00 Skráning á staðnum.
- 12 umferðir, 3 min +2 sek umhugsunartími á skák
- Tvö hlé gerð á taflmennskunni. Bjórinn á 500 kr. fyrir keppendur allt kvöldið á Billiardbarnum.
- Verðlaunaafhending í mótslok
Kóngaflokkur:
- Bikar + 8000 króna inneign á Billiardbarnum
- Verðlaunapeningur + 5000 króna inneign á Billiardbarnum
- Verðlaunapeningur + 2000 króna inneign á Billiardbarnum
Áskorendaflokkur:
- 1. sæti. 3000 króna inneign á Billiardbarnum og sæti í úrslitum kóngakeppninnar að ári!
- 2. sæti. 2000 króna inneign á Billiardbarnum
- 3. sæti. 1000 króna inneign á Billardbarnum
- Aðgangseyrir 500 kr.
- Bjórinn á Billiardbarnum 500 kr. allt kvöldið fyrir keppendur og gesti skemmtikvöldsins. 30% afsláttur af tímagjaldi í pool eftir mót.
- 20 ára aldurstakmark og meðferð áfengra drykkja bönnuð í húsakynnum félagsins.
Tilvalið tækifæri til að slútta skákárinu með því að taka þátt í skemmtilegu móti og ræða viðburði vetrarins á Billanum!
Verið velkomin!