Þeir voru baráttuglaðir skákmennirnir sem mættu til leiks í 7.umferð Skákþings Reykjavíkur. Hart var tekist á á nær öllum borðum og réðust úrslit oft ekki fyrr en eftir djúpar flækjur og fallegar fléttur.
Á efsta borði glímdi Jón Viktor Gunnarsson við Stefán Kristjánsson. Þeir buðu áhorfendum upp á djúpa stöðubaráttu framan af sem síðar leystist upp í hróksendatafl. Jón Viktor virtist pressa nokkuð á Stefán í miðtaflinu en stórmeistarinn var vandanum vaxinn og leysti þau verkefni sem fyrir hann voru lögð. Gengu þeir félagarnir út í kvöldmyrkrið með hálfan vinning hvor.
Það sem af er móti hefur Vignir Vatnar Stefánsson brennt ör á sál tveggja titilhafa. Fídemeistarinn galvaski, Dagur Ragnarsson, fékk það hlutskipti að glíma við titilhafabanann unga. Dagur mætti afar einbeittur til leiks og hreyfði menn sína fimlega um borðið. Varð snemma ljóst að Vignir Vatnar átti fyrir höndum erfiðan Dag. Dagur pressaði undrabarnið stíft allt þar til varnarmúrinn brast og Vignir Vatnar lagði niður vopn. Fyrir vikið skaust Dagur upp í 2.sætið og ætlar pilturinn sér greinilega að gera atlögu að Reykjavíkurmeistaratitlinum, enda til alls líklegur þegar hann gefur frjóum huga sínum lausan tauminn.
Á 5.borði bauð Björgvin Víglundsson upp á kennslustund í því hvernig best er að bera sig að við að tefla gegn staka peðinu margfræga. Öll spjót beindust að peðinu sem að lokum lá sært í valnum. Loftur Baldvinsson er ekki vanur að kippa sér upp við þó vanti peð í safnið og beitti hann sínum alþekktu klækjum til þess að reyna að valda sem mestum skaða í herbúðum Björgvins. Björgvin var þó vandanum vaxinn og vann skákina að lokum er hann hristi létta taktík fram úr erminni. Þótti gárungunum það býsna vel að verki staðið í ljósi þess að Björgvin var klæddur stuttermaskyrtu.
Af öðrum skákum bar hæst að Jóhann H. Ragnarsson reimaði á sig fléttuskóna og vann Jón Trausta Harðarson laglega. Guðmundur Kjartansson þurfti að hafa mikið fyrir því að leggja Birki Karl Sigurðsson að velli og Héðinn Briem hélt áfram að tefla vel og gerði jafntefli við Hörð Aron Hauksson. Stefán Bergsson lenti í miklu basli með Nansý Davíðsdóttur og lengi vel leit út fyrir að Stefán yrði að lúta í gras. Stefán er hins vegar brögðóttur, líkt og landsmenn allir vita, og hafði að lokum sigur eftir klukkuvandræði Nansýjar. Mykhaylo Kravchuk varðist vel gegn Ólafi Gísla Jónssyni og hlaut að launum hálfan vinning. Þá var hinn léttleikandi reynslubolti, Björgvin Kristbergsson, í miklu stuði og lagðist í þunga kóngssókn sem skilaði honum vinningi í sarpinn.