Þriðja og síðasta mót Páskaeggjasyrpunnar hefst kl.13 á morgun sunnudag



TRBanner2017_simple

Þriðja og síðasta mót Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur verður haldið á morgun, sunnudaginn 9.apríl. Taflið hefst klukkan 13 og er áætlað að því ljúki um klukkan 15:45.

Keppt verður í tveimur flokkum, 1-3.bekk (og yngri) og 4-10.bekk. Sjö umferðir verða tefldar með 5 mínútna umhugsunartíma á mann og bætast 3 sekúndur við tímann eftir hvern leik (5+3). Hraðskákstig verða reiknuð. Enginn ólöglegur leikur er leyfður og því tapast skák við fyrsta ólöglega leik.

Verðlaunapeningur og páskaegg verða í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Þá verður jafnframt páskaegg í verðlaun fyrir efstu stúlkuna í hvorum flokki. Að móti loknu verður einn þátttakandi dregin út í happdrætti og hlýtur sá heppni að launum stórt páskaegg. Þátttakendur geta aðeins fengið eitt páskaegg hver í hverju móti Páskaeggjasyrpunnar, þó er happdrættisvinningurinn undanskilin þeirri reglu. Að loknu þriðja og síðasta mótinu verða veitt stór páskaegg í verðlaun fyrir samanlagðan árangur.

Allir sem taka þátt í minnst tveimur af þremur mótum Páskaeggjasyrpunnar fá páskaegg í verðlaun fyrir þátttökuna og verða þau afhent í lok þriðja mótsins.

Skráning fer fram í gegnum skráningarformið hér að neðan, en einnig má nálgast það í gula kassanum á skak.is. Birnukaffi verður opið svo engin þarf að tefla með tóman maga!

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til að sjá ykkur á móti númer 3 í Páskaeggjasyrpunni 2017!

Skráningarform

Skráðir keppendur