Í örstuttu viðtali við fréttaritara eftir níundu og síðustu umferð Skákþings Reykjavíkur á föstudagskvöld sagði Guðmundur Gíslason aðspurður, að hann væri ekki að fara að aka vestur á firði það kvöldið, heldur ætlaði hann að vera í bænum á laugardag og vinna síðan Hraðskákmót Reykjavíkur á sunnudag. Og það gerði hann heldur betur! Guðmundur var búinn að vinna allar tíu skákir sínar og tryggja sigurinn áður en síðasta umferð hófst; vann líka þá síðustu og sigraði þannig með fullu húsi. Sá er þetta ritar, rekur ekki minni til að mótið hafi unnist með þessum hætti áður. Í öðru stuttu viðtali, eftir að mótinu lauk, sagðist hinn hógværi Guðmundur hafa haft heppnina með sér í a.m.k. tveimur skákum. Heppni í tveimur skákum telst þó varla mikið á 11 umferða hraðskákmóti með á fjórða tug þátttakenda, þar sem margir af þeim sem röðuðu sér í efri sætin á Skákþinginu sjálfu voru með. Sigurvegarinn hækkar enda um tæp 50 hraðskákstig fyrir árangurinn.
Guðmundur á þó lögheimili, eins og kunnugt er, fyrir vestan og er ekki skráður meðlimur í taflfélagi í Reykjavík og því er Dagur Ragnarsson, sem varð í öðru sæti með 8 vinninga og barðist á toppborðunum allan tímann, Hraðskákmeistari Reykjavíkur 2017. Jafn honum að vinningum en lægri á stigum varð síðan Bárður Örn Birkisson. Vinningi neðar með sjö vinninga komu síðan einir fimm skákmenn.

Verðlaunahafar. Bárður Örn Birkisson (3.sæti), Guðmundur Gíslason (1.sæti) og Dagur Ragnarsson (2.sæti).
Röð annarra keppenda, árangur og úrslit má sjá á Chess-results.