Unglingameistarmót Reykjavíkur 2009 fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur laugardaginn 9. maí kl. 14. Tefldar voru 7 umferðir eftir Monradkerfi og umhugsunartíminn var 15 mín. á mann. Þátttökurétt áttu öll börn og unglingar á grunnskólaaldri (1.-10. bekk). Þau sem búsett eru í Reykjavík (eru í grunnskólum Reykjavíkur) kepptu um þrenn verðlaun og unglingameistaranafnbótina/farandbikar. Börn og unglingar úr grunnskólum annarra sveitarfélaga voru velkomin að taka þátt í mótinu sem gestir.
Efstur meðal Reykjavíkurkeppenda varð Dagur Kjartansson úr Hólabrekkuskóla og Taflfélaginu Helli, sem hlaut því titilinn Unglingameistari Reykjavíkur 2009. Með sama vinningafjölda en lægri á stigum var Stefán Már Helgason úr Hólabrekkuskóla sem hlaut 2. sætið. Í 3. sæti varð svo Veronika Steinunn Magnúsdóttir úr Melaskóla og Taflfélagi Reykjavíkur, sem var með jafn marga vinninga og Dagur og Stefán Már, en lægri á stigum.
Af 22 keppendum voru 16 úr grunnskólum Reykjavíkur, þar af 11 keppendur úr Hólabrekkuskóla! Auk þess tóku 6 keppendur frá grunnskólum Kópavogs, Hafnarfjarðar og Seltjarnarness þátt. En það var einmitt Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir úr Valhúsaskóla Seltjarnarnesi sem vann mótið í heild sinni með 6 1/2 v. af 7. Í 2. -3. sæti urðu þeir félagarnir Páll Andrason og Birkir Karl Sigurðsson úr Salaskóla Kópavogi með 5 1/2 v. Þessi þrjú tefldu sem gestir en voru að öðru leyti á heimavelli, þar sem þau eru öll félagar í T.R.
Heildarúrslit urðu sem hér segir:
1. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, Valhúsaskóli/T.R. 6 1/2 v. af 7
2.-3. Páll Andrason, Salaskóli/T.R. 5 1/2 v.
2.-3. Birkir Karl Sigurðsson, Salaskóli/T.R. 5 1/2 v.
4. Dagur Kjartansson, Hólabrekkuskóli/Taflfélagið Hellir 4 1/2 v. Unglingameistari Reykjavíkur 2009.
5. Stefán Már Helgason, Hólabrekkuskóli 4 1/2 v. (2. sæti)
6. Veronika Steinunn Magnúsdóttird, Melaskóli/T.R. 4 1/2 v. (3. sæti)
7.-11. Sverrir Freyr Kristjánsson, Hólabrekkuskóli 4 v.
7.-11. Brynjar Steingrímsson, Hólabrekkuskóli/Taflfélagið Hellir 4 v.
7.-11. Sóley Lind Pálsdóttir, Hvaleyrarskóli/T.G. 4 v.
7.-11. Þorsteinn Freygarðsson, Árbæjarskóli/T.R. 4 v.
7-11. Guðmundur Freyr Magnússon, Hólabrekkuskóli 4 v.
12.-13. Friðrik Daði Smárason, Hólabrekkuskóli 3 1/2 v.
12.-13. Fannar Dan Vignirsson, Hólabrekkuskóli 3 1/2 v.
14.-18. Einar Óli Guðnason, Hólabrekkuskóli 3 v.
14.-18. Róbert Óðinn Kristjánsson, Hólabrekkuskóli 3 v.
14.-18. Sævar Atli Magnússon, Hólabrekkuskóli 3 v.
14.-18. Sigurður Alex Pétursson, Árbæjarskóli/T.R. 3 v.
14.-18. Gauti Páll Jónsson, Grandaskóli/T.R. 3 v.
19.-20. Dagur Ragnarsson, Rimaskóli/Fjölnir 2 v.
19.-20. Kristófer Þór Pétrusson, Snælandsskóli/T.R. 2 v.
21. Erik Daníel Jóhannesson, Engidalsskóli/Haukar 1 1/2 v.
22. Selma Þórhallsdóttir, Hólabrekkuskóli 1/2 v.
Skákstjórar voru Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir og Jóhann H. Ragnarsson. Birna Halldórsdóttir sá um vöfflubakstur og aðrar veitingar af sinni alkunnu snilld!