Fimmta mót Brim mótaraðarinnar 2020-2023 verður haldið helgina 2.-4. júní næstkomandi, í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Mótið verður að þessu sinni hluti af Boðsmóti TR. Mótið er opið öllum.
Fyrirkomulag mótsins:
Föstudagurinn 2. júní klukkan 19:30
1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5
Laugardagurinn 3. júní klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30
Laugardagurinn 3. júní klukkan 17: 6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30
Sunnudagurinn 4. júní klukkan 11: 7.umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30.
Eftir mótið verður haldið 9. umferða hraðskákmót með tímamörkunum 3+2. Miðað verður við að það hefjist klukkan 16 á sunnudeginum. Sigurvegari hraðskákmótsins fær aukastig í stigakeppninni. Hraðskákmótið er líka opið þeim sem ekki tóku þátt í aðalmótinu, ókeypis fyrir þátttakendur í aðalmótinu, 1000kr fyrir aðra. Hraðskákmótið er reiknað til hraðskákstiga, og aðalmótið er reiknað til at- og kappskákstiga.
Þáttökugjöld: 4000kr.
2000kr. fyrir 17 ára og yngri
Ókeypis fyrir GM/IM og TR-inga 17 ára og yngri
Verðlaunafé í mótinu:
- 15.000
- 10.000
- 8000
Verðlaunasjóður fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex:
Heildarkeppnin:
- 125.000kr.
- 75.000kr.
- 50.000kr.
Efsta skákkonan: 33.000kr.
Efstur U1900 skákstigum, júní listinn 2020: 33.000kr.
Efstur 17 ára og yngri: 33.000
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.
Stigakeppnin virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Aukastig fyrir sigur í hraðskákmótinu eftir aðalmótið. Stigakeppnir með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Fjögur bestu mót hvers þáttakanda gilda í stigakeppninni
Fréttir síðustu móta:
Mót 2 (TR 26.-28. febrúar 2021)
Mót 4 (Goðinn Húsavík 25.-27. mars 2022)
Staða efstu manna í stigakeppninni að afloknum fjórum mótum:
- Davíð Kjartansson 34 stig
- Vigni Vatnar Stefánsson 30 stig
- Lenka Ptacnkikova 22 stig
- Alexander Oliver Mai 16 stig
Athugið að að fjögur bestu mótin duga. Nú eru tvö mót eftir þannig að menn fá tækifæri til að bæta skorið. Dæmi: Ef Davíð Kjartansson vinnur næsta mót (fær 10 stig fyrir það) er hann kominn með 40 stig. Lélegasta mótið hans gaf 4 stig, það dettur út og 10 stig bætast við. Staðan verður uppfærð eftir næsta mót með þetta í huga.
Almenn Kynning á Mótaröðinni:
Taflfélag Reykjavíkur kynnir með stolti, í samstarfi með Skákfélaginu Goðanum, BRIM Skákmótaröðina 2020-2023!
Haldin verða sex helgarskákmót, fjögur í TR, eitt á Húsavík, og ekki hefur verið ákveðið hvar sjötta mótið verður haldið.
Brim er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar ásamt Skáksambandi Íslands. Keppt verður um glæsileg verðlaun; 350.000 króna verðlaunasjóður er fyrir bestan samanlagðan árangur. Það verður stigakeppni þar sem fjögur bestu mót hvers skákmanns gilda.