Birkir Karl Sigurðsson sigraði á fimmtudagsmóti TR í kvöld. Loftur Baldvinsson leiddi reyndar mótið lengst af og vann fyrstu fimm skákirnar en tapaði fyrir Birki í næstsíðustu umferð og sá síðarnefndi skaust síðan framúr með sigri í þeirri síðustu. Úrslit í gærkvöldi urðu annars sem hér segir:
- 1 Birkir Karl Sigurðsson 6.0
- 2 Loftur Baldvinsson 5.5
- 3 Guðmundur G. Guðmundsson 4.5
- 4-8 Jóhann Bernhard 4
- Jón Trausti Harðarson 4
- Halldór Ingi Kárason 4
- Páll Þórsson 4
- Guðmundur K. Lee 4
- 9 Stefán Pétursson 3.5
- 10 Björgvin Kristbergsson 3
- 11-12 Jón Úlfljótsson 2.5
- Kristinn Andri Kristinsson 2.5
- 13 Pétur Jóhannesson 1
- 14 Gauti Páll Jónsson 1/2