Hefðbundin þriðjudags- og fimmtudagsmót munu fara fram í vikunni hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Þó verður það snið aukalega á að mótin verða með verðlaunum og í samstarfi við Billiardbarinn sem er einmitt í sama húsnæði í Faxafeni 12! Billiardbarinn mun veita aukaverðlaun en auk þess verða í gangi tilboð á mótsdögunum. Ef menn vilja gæða sér á hamborgurum þá eru þeir ...
Lesa meira »Author Archives: Gauti Páll Jónsson
Fyrrverandi formaður með fullt hús
Fyrverandi formaður TR Gauti Páll Jónsson kom sá og sigrðaði síðasta þriðjudagsmót með fullt hús stiga. Næstur á eftir var Dagur Ragnarsson með 4 vinninga og teflandi skákdómarinn var í 3ja sæti á stigum með 3 vinninga. Hin bráðefnilegi Pétur Úlfar Ernisson vann svo árangursverðlaunin og hækkaði um 69 stig og hinn minna efnilegri Þorsteinn Magnússon var þar ekki ...
Lesa meira »Oliver Aron með fullt hús á fimmtudagsmóti!
17 skákmenn mættu til leiks fimmtudagskvöldið 13.júní sem er mjög góð þátttaka en þar sem grunnskólarnir eru komnir í sumarfríi þá mættu ungir og efnilegir skákmenn til leiks sem annars hafa minna mætt. Telfdar voru 10 umferðir með tímamörkunum 3+2 þ.e. þrjár mínútur plús tvær sekúndur á hvern leik í uppbótartíma. Fide meistarinn Oliver Aron Jóhannesson sigraði allar sínar skákir ...
Lesa meira »Eiríkur K. Björnsson með fullt hús á Þriðjudagsmóti!
Eiríkur K. Björnsson sýndi hvað í sér býr og vann þriðjudagsmótið 11. júní með fullu húsi! 18 skákmenn mættu til leiks, nokkrir sem hafa verið um og yfir 2000 stigin, en annars hafa mótin undanfarið verið sérlega vel sótt af þeim sem enskurinn kallar “club players”. Einnig hefur aðeins aukist að yngsta kynslóðin sýni hvað í sér býr á mótunum. ...
Lesa meira »Fyrsta mót Sumarsyrpu TR 14.-16. júní!
Sumarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur göngu sína sumarið 2024. Eru mótin með sama fyrirkomulagi og Bikarsyrpurnar, kappskákmót fyrir börn með minna en 1800 skákstig. Mótin fara fram þriðju helgi hvers sumarmánaðar, júní, júlí og ágúst. Bikarsyrpurnar hafa verið haldnar í 10 ár, en þetta er í fyrsta sinn sem mót af því tagi eru haldin á sumrin í TR. Mótin verða: ...
Lesa meira »Meistaramót Truxva fer fram á morgun!
Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 20. maí, annan í hvítasunnu, í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í áttunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30. (ath. klukkutíma fyr en vanalega með hraðskákmót í TR) Tefldar verða 11 eða 13 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Verðlaun: 1.sæti 25.000 kr. 2.sæti 15.000 kr. 3.sæti 10.000 kr. U2000 Bókaverðlaun ...
Lesa meira »Sumarsyrpa TR! Upplýsingar og dagskrá
Sumarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur göngu sína sumarið 2024. Eru mótin með sama fyrirkomulagi og Bikarsyrpurnar, kappskákmót fyrir börn með minna en 1800 skákstig. Mótin fara fram þriðju helgi hvers sumarmánaðar, júní, júlí og ágúst. Bikarsyrpurnar hafa verið haldnar í 10 ár, en þetta er í fyrsta sinn sem mót af því tagi eru haldin á sumrin í TR. Mótin verða: ...
Lesa meira »Ingvar Þór nýr formaður T.R. Hermann Ragnarsson heiðursfélagi
Á aðalfundi Taflfélags Reykjavíkur sem fram fór í kvöld var Ingvar Þór Jóhannesson kosinn formaður T.R. við mikinn fögnuð. Ingvar þarf vart að kynna en hann er í ritstjórnarteymi skak.is, er landsliðsjálfari kvenna, Fide-meistari í skák, og hefur undanfarin ár þjálfað framhaldsflokka T.R. Á fundinum var Hermann Ragnarsson gerður að heiðursfélaga Taflfélags Reykjavíkur fyrir störf sín í þágu félagsins. Við ...
Lesa meira »Aðalfundur TR verður á morgun!
Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður haldinn í félagsheimilinu Faxafeni 12, miðvikudaginn 15. maí og hefst hann kl. 19.30. Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf Önnur mál Stjórnin
Lesa meira »Hraðskákmót og verðlaunaafhending Boðsmótsins kl. 16:00 í dag!
Haldið verður 9. umferða hraðskákmót klukkan 16:00 í dag í TR, Faxafeni 12. Mótið er reiknað til stiga og opið öllum. Stefnt er að tímamörkunum 4+2. Áður en mótið hefst verður verðlaunaafhenging fyrir Boðsmót TR, en lokaumferðin hefst klukkan 11:00 í dag.
Lesa meira »Boðsmót TR hefst í kvöld! Skráning opin til 17:00
Boðsmót TR verður haldið dagana 10.-12. maí næstkomandi. Þrátt fyrir nafngiftina er mótið opið öllum! Núverandi boðsmótsmeistari er Hilmir Freyr Heimisson. Mótið var haldið frá 1968 til 2007 og endurvakið 2022. Fyrirkomulag mótsins: Föstudagurinn 10. maí klukkan 19:30 1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5 Laugardagurinn 11. maí klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30 Laugardagurinn 11. maí klukkan 17: 6. umferð, kappskák með ...
Lesa meira »Lenka öðlingameistari 2024! Bragi vann hraðskákina
Skákþing Öðlinga, eða einfaldlega Öðlingamótið, fór fram í TR frá 14. febrúar til 3. apríl. Mótið er fyrir alla skákmenn sem eru 40 ára eða eldri. Mótið var heldur fámennara en oft áður, 22 skráðir til leiks, en að sjálfsögðu afar góðmennt – reyndar bókstaflega afar góðmennt enda margir þátttakenda afar. Til að byrja með einkenndist mótið af fantaformi Kristjáns ...
Lesa meira »Ekkert þriðjudagsmót þann 30. apríl
Það verður ekkert þriðjudagsmót þann 30. apríl. Við beinum fastagestum okkar á skákmót sem stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson heldur á Snooker & Pool Lágmúla þetta sama kvöld. Upplýsingar og skráning á mótið á Snooker & Pool
Lesa meira »Dagskrá Haustmóts TR 2024
Dagskrá Haustmóts TR liggur fyrir. Mótið mun hefjast miðvikudaginn 4. september og því mun ljúka sunnudaginn 22. september. Teflt verður á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Nánari upplýsingar og skráning birt á netinu þegar nær dregur. Stjórn TR
Lesa meira »Rimaskóli sigursæll á Reykjavíkurmóti grunnskóla 2024!
Reykjavíkurmót grunnskóla 2024 fór fram dagana 3. og 4. apríl síðastliðinn. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla og frístundasviðs Reykjavíkur (SFS) og Taflfélags Reykjavíkur. Keppt var í þremur flokkum, 1.-3. bekk, 4.-7. bekk og 8.-10. bekk. Fyrri daginn fór fram keppni 1.-3. bekkjar og daginn eftir voru eldri flokkarnir haldnir hver af öðrum, sá seinni samhliða fimmtudagshraðskákmóti TR sem ...
Lesa meira »Hraðskákmót öðlinga fer fram í kvöld!
Hraðskákmót öðlinga 2024 fer fram miðvikudaginn 10. apríl, og hefst taflmennskan kl. 19.30. Mótið er opið fyrir alla 40 ára og eldri (f. 1984 og síðar). Tefldar verða 7 umferðir með 5+3 umhugsunartíma. Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lýkur þann 3. apríl. Þátttökugjald er kr. 1,000 fyrir þá sem tóku ekki þátt ...
Lesa meira »Reykjavíkurmót grunnskóla 2024 verður 3. og 4. apríl
Reykjavíkurmót grunnskólasveita 2024 hefst í húsnæði TR að Faxafeni 12 miðvikudaginn 3. apríl kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkjar. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt eins og undanfarin ár; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram daginn eftir, fimmtudaginn 4. apríl. ...
Lesa meira »Þriggja ára samningur við Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Aleksander Domalchuk-Jonassona hefur skrifað undir samning við félagið um stuðning til næstu þriggja ára til að gera honum kleift að ná markmiðum sínum í skák og að tefla fyrir hönd félagsins innan lands sem utan. Aleksandr hefur bætt sig mikið á stuttum tíma og varð til að mynda alþjóðlegur meistari ásamt því að ná stórmeistaraáfanga, á nýloknu Íslandsmóti skákfélaga. Stuðningurinn ...
Lesa meira »Páskahraðskákmót TR fer fram á morgun!
Páskahraðskákmót TR fer fram laugardaginn 30. mars klukkan 13:00. Tefldar verða 11. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Þáttökugjöld: 1000 krónur. 500 krónur fyrir 17 ára og yngri og ókeypis fyrir 17 ára og yngri í TR, og alla alþjóðlega- og stórmeistara. Skráning fer fram á netinu, en hægt er að skrá sig í gula kassanum á skak.is ...
Lesa meira »Það verða skákæfingar á morgun!
Æfingar falla ekki niður á morgun, laugardaginn 30. mars nema manngangskennsla. Byrjendaflokkur og framhaldsflokkur á sínum stað.
Lesa meira »