Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 20. maí, annan í hvítasunnu, í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í áttunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30. (ath. klukkutíma fyr en vanalega með hraðskákmót í TR)
Tefldar verða 11 eða 13 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Verðlaun:
- 1.sæti 25.000 kr.
- 2.sæti 15.000 kr.
- 3.sæti 10.000 kr.
- U2000 Bókaverðlaun
- Efsta TR-ungmennið Bókaverðlaun
Meistaramótið markar lok starfsárs ungmennahreyfingar Taflfélags Reykjavíkur. Margir af sterkustu hraðskákmönnum þjóðarinnar taka þátt. Sigurvegarar fyrri móta:
- 2023 GM Vignir Vatnar Stefánsson
- 2022 IM Vignir Vatnar Stefánsson
- 2021 IM Vignir Vatnar Stefánsson
- 2020 IM Davíð Kjartansson
- 2019 IM Arnar Gunnarsson
- 2018 IM Guðmundur Kjartansson
- 2017 IM Arnar Gunnarsson
Verðlaun skiptast eftir Hort kerfinu.
Þátttökugjald er 1000kr fyrir fullorðna en 500kr fyrir 17 ára og yngri. Ókeypis fyrir IM og GM. Skráning í mótið fer fram í gegnum hefðbundið skráningarform.