TRUXVI Meistaramót haldið fimmtudaginn 2.maí



TRUXVI Meistaramót verður haldið fimmtudaginn 2. maí næstkomandi í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í þriðja sinn og er opið öllum skákáhugamönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 19:30 og er áætlað að mótinu ljúki um kl.22.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Verðlaun:

  • 1.sæti: 25.000 kr.
  • 2.sæti: 15.000 kr.
  • 3.sæti: 10.000 kr.
  • U2000: Bókaverðlaun
  • Efsta TR-ungmennið: Bókaverðlaun

Meistaramótið markar lok starfsárs ungmennahreyfingar Taflfélags Reykjavíkur og er mótið eitt sterkasta hraðskákmót landsins. Sigurvegarar fyrri móta:

Þátttökugjald er 1000kr fyrir fullorðna en 500kr fyrir 17 ára og yngri. Skráning í mótið fer fram í gegnum hefðbundið skráningarform.