KORNAX aukakeppnin: Björn og Bragi með jafntefli



Bræðurnir Bragi (2426) og Björn Þorfinnssyni (2406) gerðu jafntefli í 4. umferð aukakeppni KORNAX mótsins – Skákþings Reykjavíkur sem tefld var í gær. Björn er efstur með 2 vinninga en Guðmundur og Bragi hafa 1 vinning. Guðmundur hefur skák til góða á bræðurna. Björn og Guðmundur tefla á föstudaginn. Staðan: Björn Þorfinnsson (2406) 2 v. af 3 Guðmundur Kjartansson (2326) 1 v. af 2 Bragi Þorfinnsson (2426) 1 v. af 3 Tefld verður tvöföld umferð og verður teflt á sunnudögum kl. 14 og á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30. Teflt er í T.R.