Tölvuteksmótið 2012 – Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst sunnudaginn 23. september kl.14.
Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og jafnframt meistaramót T.R. Það er áratuga hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti og er það flokkaskipt og öllum opið.
Teflt er í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Alls verða tefldar 9 skákir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er tefldar níu umferðir eftir svissnesku kerfi.
Skráning fer fram á heimasíðu T.R.
Hægt er að fylgjast með skráningu hér.
Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 22. september kl. 18.
Skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur síðustu tveggja ára er Guðmundur Kjartansson.
Dagskrá:
1. umferð: Sunnudag 23. september kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 26. september kl.19.30
3. umferð: Föstudag 28. september kl.19.30
4. umferð: Sunnudag 30. september kl.14.00
5. umferð: Miðvikudag 3. október kl.19.30
—Hlé vegna Islandsmóts skákfélaga—
6. umferð: Miðvikudag 10. október kl.19.30
7. umferð: Föstudag 12. október kl.19.30
8. umferð: Sunnudag 14. október kl. 14.00
9. umferð: Miðvikudag 17. október. kl.19.30
Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 20.000 auk spjaldtölvu frá Tölvutek
3. sæti kr. 10.000 auk spjaldtölvu frá Tölvutek
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2013
Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2013
Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2013
Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2013
Ef fleiri lokaðir flokkar bætast við, verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki.
Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu.
Verði keppendur jafnir að vinningum ræður stigaútreikningur lokasæti – verðlaunum er ekki skipt.
Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.
Þátttökugjöld:
3500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (4000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 15 ára og yngri (2.000 kr. fyrir aðra).
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins