Hraðskákmót TR fer fram nk. miðvikudag



Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 miðvikudaginn 27. september kl. 19:30. Tefldar verða 11 umferðir eftir svissnesku kerfi og er umhugsunartíminn 4 mínútur auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (4+2). Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir 18 ára og eldri, en kr. 500 fyrir 17 ára og yngri. Félagsmenn TR sem eru 17 ára og yngri fá frítt í mótið. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Auk þess verður krýndur Hraðskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur. Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig í forminu hér að neðan.

Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur.

Skráningarform

Skráðir keppendur