Haustmót TR hefst næstkomandi sunnudag



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2014 hefst sunnudaginn 14. september kl.14. Mótið á 80 ára afmæli í ár, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Mótið er flokkaskipt og öllum opið.

Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Tefldar verða tvær umferðir á viku. Alls eru níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi.

Skráning fer fram á skak.is og einnig á heimasíðu T.R. Fylgjast má með skráningu hér.

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 13. september kl. 18.

Lokaumferð fer fram föstudaginn 17. október en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu sunnudaginn 19. október þegar Hraðskákmót T.R. fer fram.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Kjartan Maack.

Dagskrá:
1. umferð: Sunnudag 14. september kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 17. september kl.19.30
3. umferð: Sunnudag 21. september kl.14.00
4. umferð: Miðvikudag 24. september kl.19.30
5. umferð: Sunnudag 28. september kl.14.00

—Hlé vegna Íslandsmóts skákfélaga—

6. umferð: Miðvikudag 8. október kl.19.30
7. umferð: Sunnudag 12. október kl.14.00
8. umferð: Miðvikudag 15. október kl. 19.30
9. umferð: Föstudag 17. október. kl.19.30

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2015

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.-3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2015

Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2015

Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2015

Ef lokuðum flokkum fjölgar þá verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki. Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur jafnir í efstu sætum verður peningaverðlaunum skipt en stigaútreikningur látinn ráða lokaröð keppenda. Taflfélag Reykjavíkur áskilur sér jafnframt rétt til þess að halda eftir 25% af verðlaunafé þeirra sem ekki mæta á verðlaunaafhendinguna.

Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur.

Þátttökugjöld:
3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (5.000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 15 ára og yngri (2.500 kr. fyrir aðra).