Jólaskákæfing TR næsta laugardag kl.13



Hin árlega Jólaskákæfing verður haldin laugardaginn 9.desember kl.13-16. Æfingin markar lok haustannarinnar og er því jafnframt uppskeruhátíð barnanna sem lagt hafa hart að sér við taflborðin undanfarnar vikur og mánuði. Veitt verða verðlaun fyrir ástundun á haustönn í byrjendaflokki, stúlknaflokki, framhaldsflokki og á opnu laugardagsæfingunni. Öll börn og unglingar úr öllum skákhópum TR eru velkomin á þessa sameiginlegu jólaskákæfingu.

Æfingin er einskonar fjölskylduskákmót þar sem tveir einstaklingar mynda eitt lið og mega foreldrar, ömmur og afar, frændur og frænkur og bræður og systur gjarnan tefla með börnunum. Einnig mega vinir og vinkonur tefla saman. Við hvetjum jafnframt öll skákbörn sem hafa engan í sínu nærumhverfi til að tefla með sér til þess að koma líka og tefla með okkur. Við munum búa til lið á staðnum fyrir öll stök skákbörn. Í hverju liði má aðeins annar liðsmaðurinn vera með yfir 1600 skákstig. Boðið verður upp á léttar veitingar auk þess sem dregnir verða út happdrættisvinningar.

Skákþjálfarar TR hlakka mikið til að hitta öll börnin í jólaskapi á laugardaginn!

 

Skráning fer fram hér: Skráningarform

Allt um jólaskákæfinguna í fyrra: Jólaskákæfing 2016

Myndir frá jólaskákæfingunni í fyrra má sjá hér: