Björn Jónsson nýr formaður Taflfélags Reykjavíkur



Björn Jónsson var einróma kjörinn formaður Taflfélags Reykjavíkur á aðalfundi félagsins sem fór fram fyrr í kvöld.  Björn hefur verið virkur í stjórn félagsins undanfarin ár og tekur nú við góðu búi af Sigurlaugu Regínu Friðþjófsdóttur sem gengt hefur formennsku frá árinu 2009.  Ásamt Birni skipa stjórn félagsins starfsárið 2013-2014:

 

  • Áslaug Kristinsdóttir
  • Bragi Þór Thoroddsen
  • Kjartan Maack
  • Ólafur S. Ásgrímsson
  • Ríkharður Sveinsson
  • Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir
  • Torfi Leósson
  • Þorsteinn Stefánsson
  • Þórir Benediktsson
  • Þröstur Olaf Sigurjónsson

 

Úr stjórn ganga Eiríkur K. Björnsson, Elfa Gylfadóttir, Elín Nhung og Halldór Pálsson.  Taflfélag Reykjavíkur þakkar þeim fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.