Atskákmót öðlinga hefst 17. nóvember



Atskákmót öðlinga, 40 ára og eldri, hefst miðvikudaginn 17. nóvember kl. 19:30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12.   Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu, þrjár skákir á kvöldi með umhugsunartímanum 25 mínútum á skák.

Mótinu er svo framhaldið miðvikudagana 24. nóv og 1. des á sama tíma.

Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

 

Þátttökugjald er kr. 2.000 (ljúffengt kaffi innifalið).

Núverandi atskákmeistari er Þorsteinn Þorsteinsson.