Vetrarmót öðlinga: Mikil spenna – þrír efstir



Fjórða umferð í Vetrarmóti öðlinga fór fram í gærkvöldi.  Að henni lokinni eru Ríkharður Sveinsson, Haraldur Baldursson og Ögmundur Kristinsson efstir og jafnir með 3,5 vinning.  Ríkharður og Ögmundur gerðu jafntefli sín í milli og þá gerðu Haraldur og Hrafn Loftsson einnig jafntefli.  Hrafn hefur 3 vinninga ásamt sex öðrum keppendum svo það má búast við mikilli spennu í seinni hluta mótsins.

Fimmta umferð fer fram næskomandi miðvikudagskvöld og hefst kl. 19.30.  Þá mætast m.a. Ögmundur og Haraldur, Gylfi Þór Þórhallsson og Ríkharður sem og Hrafn og Siguringi Sigurjónsson.

  • Úrslit, staða og pörun
  • Skákir: 1   2
  • Vetrarmót öðlinga 2012
  • Vetrarmót öðlinga 2011