Björn Þorfinnsson og Bragi Þorfinnsson gerðu jafntefli í 1. skák
úrslitakeppni Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í kvöld. 2. skák
úrslitakeppninnar fer fram nk. föstudag en þá tefla Björn og Guðmundur
Kjartansson.
Töfluröð aukakeppninnar er:
1. Guðmundur
2. Björn
3. Bragi
tefld verður tvöföld umferð og verður teflt á sunnudögum kl. 14 og
á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30. Teflt er í T.R.