Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur fer fram 15.mars



Sigurvegarar opnum

Stúlkna- og drengjameistaramót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 15mars

Þátttökugjöld eru kr.1500 (í alla flokka).

Skráning fer fram í gegnum Sportabler.

Skráningarform:

Mótið er telft í fjórum flokkum

Skráning í alla flokka fer fram hér:

Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2010 eða síðar.

Aðalkeppnin fer fram í einum opnum flokki og þar verður keppt um sæmdarheitin Drengjameistari Reykjavíkur 2026 og Stúlknameistari Reykjavíkur 2026. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).  Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Aðalkeppnin hefst 
kl.13 og má reikna með að hún standi til kl.17 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

Boðið verður upp á þrjá yngri flokka:

Yngri flokkur 1 (f.2016-2017)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).
Yngri flokkur hefst 
kl.13 og má reikna með að standi til kl.15.30 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

Yngri flokkur 2 (f.2018)

Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s). Yngri flokkur 2 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.

Yngri flokkur 3 (f.2019 og síðar)
Tefldar verða 5 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 7 mínútur á skák, auk þess sem 3 sekúndur bætast við eftir hvern leik (7m+3s).
Yngri flokkur 3 hefst 
kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.
Krakkar sem eru gjaldgengir í yngri flokkana mega velja hvort þau tefla í aðalkeppninni eða í yngri flokkunum.

Verðlaun í opna flokknum:

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í öllum árgöngum. Elsti árgangurinn er 2010 og yngsti árgangurinn er 2019 og yngri.

Nafnbótina Drengjameistari Reykjavíkur 2026 hlýtur sá drengur sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.
Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2026 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem eiga lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.

Verðlaun í yngri flokki 1:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2016 og 2017).

Verðlaun í yngri flokk 2:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng.

Verðlaun í yngri flokk 3:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í árganginum 2019 og 2020 og yngri.

Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Pétur Úlfar Ernisson og Emilía Embla Baldvinsdóttir Berglindardóttir.

Skráðir Keppendur: (uppfært síðar)

Ef einhverjar spurningar vakna má senda fyrirspurn á  taflfelag@taflfelag.is.