Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 6. janúar



Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 6. janúar kl. 13.00. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 90 mínútur og bætast við 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra á þar til gerðu eyðublaði við upphaf umferðarinnar á undan. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu.

Dagskrá

1. umferð sunnudag 6. janúar kl. 13.00
2. umferð miðvikudag 9. janúar kl. 19.30
3. umferð sunnudag 13. janúar kl. 13.00
4. umferð miðvikudag 16. janúar kl. 19.30
5. umferð sunnudag 20. janúar kl. 13.00
6. umferð miðvikudag 23. janúar kl. 19.30
7. umferð sunnudag 27. janúar kl. 13.00
8. umferð miðvikudag 30. janúar kl. 19.30
9. umferð sunnudag 3. febrúar kl. 13.00

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram miðvikudaginn 6. febrúar kl. 19.30 og verður þá jafnframt verðlaunaafhending fyrir Skákþingið.

Tímamörk

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn

IA Ólafur Ásgrímsson og IA Ríkharður Sveinsson (rz@itn.is / s.772 2990)

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 100.000
  • 2. sæti kr. 50.000
  • 3. sæti kr. 30.000

Aukaverðlaun

  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (2000+): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (u2000): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (u1600): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (u1200): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (stigalausir): kr. 10.000. (Miðað er við 1000 stig hjá stigalausum).

Keppandi getur aðeins hlotið ein verðlaun.

Þátttökugjöld (greiðist með reiðufé við upphaf móts).

kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri.

Skráningarform

Skráðir keppendur

 

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2019 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Stefán Bergsson.

Nýti keppandi sér meira en eina yfirsetu getur sá hinn sami ekki hlotið aðalverðlaun eða meistaratitilinn.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en mótsstig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest mótsstig. Röð mótsstiga: 1. Buchholz (-1) 2.  Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Skákir mótsins verða birtar á pgn formi.

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 12.45.