Helgina 25-27 febrúar fór fram þriðja Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur. Mættir voru 20 krakkar sem þyrsti í að tefla nokkra kappskákir.
Ólíkt fyrri Bikarsyrpum á þessu tímabili sáust strax nokkur óvænt úrslit í fyrstu umferð. Á fyrsta borði var það Einar Helgi sem vann Guðrúnu Fanney stigahæsta keppanda mótsins í hörku skák. Einnig vann Níels Ingólfsson hinn unga Oliver Kovacik sem átti eftir koma mikið við sögu seinna í mótinu.
Við miðbik mótsins voru það Markús Orri og Birkir sem leiddu mótið. Fyrir 5 umferð var Birkir einn efstur með fullt hús og Markús aðeins hálfum vinningi á eftir. Mættust þeir í fimmtu umferð og hafði Markús hvítt í þeirri skák. Eftir að hafa náð mikilli pressu á g-línunni náði Markús að yfirfæra það í skiptamun sér í vil og vann síðan skákina nokkuð sannfærandi.
Allt leit þess vegna út fyrir að Markús væri á nokkuð öruggri siglingu með að sigra sitt annað mót í mótaröðinni.
Það var hins vegar í 6.umferð sem vindar snérust. Þá mættust Markús og Oliver og tefld var sikileyjarvörn.
Eftir nokkuð mikil uppskipti í miðtaflinu náði Markús að vinna peð en í staðinn fékk Oliver virka stöðu fyrir mennina sína.
Stuttu seinna kom eftirfarandi staða.
Síðasti leikur var 36.g4 sem valdar f5-riddarann og hótar óverjandi máti á g7-reitnum. Hvítur er hins vegar einu tempói of seinn og það er svartur sem mátar með 36…♖e2#
Fyrir sjöundu og jafnframt síðustu umferð var það Oliver sem leiddi mótið með 5.0 vinningum. Í humátt á eftir honum komu Markús Orri, Guðrún Fanney, Örvar og Birkir öll með 4.5 vinning. Úrslit í mótinu voru þess vegna ennþá alveg opin.
Í sjöundu umferð mættust:
- borð: Örvar og Oliver
- borð: Birkir og Guðrún
- borð: Kjartan – Markús Orri
Fyrsta skákin til að ljúka var hjá Markúsi sem vann nokkuð fljótt. Markús var þá kominn í góða stöðu þar sem hann var mun hærri á stigum heldur en aðrir í toppbaráttunni. Guðrún vann einnig sína skák stuttu seinna og var þá jöfn Markúsi með 5.5 vinning. Það var hins vegar Oliver sem hafði tækifæri á að verða einn eftstur ef hann myndi sigra skák sína við Örvar.
Skákin hjá þeim félögum byrjaði nokkuð rólega. Eftir mikil uppskipti náði Oliver að vinna skiptamun og síðan mann í kjölfarið sem tryggði honum sigurinn.
Oliver endaði þess vegna einn efstur með 6 vinninga af 7. Frábær sigur hjá Oliver sem er aðeins 9 ára gamall.
Markús og Guðrún enduðu bæði með 5.5 vinninga en Markús var hærri á stigum.
- Oliver Kovacik 0/7
- Markús Orri Jóhannsson 5.5/7
- Guðrún Fanney Briem 5.5/7
Eins og venjulega voru einnig veitt stúlkna verðlaun.
Efst að þessu sinni var Guðrún Fanney með 5.5 vinning.
- Guðrún Fanney Briem – 5.5/7
- Halldóra Jónsdóttir – 2.0/7
- Sóley una Guðmundsdóttir 1.5/7
Efstur T.R-inga var Arnar Daði Pálsson með 4.5 vinning sem var að taka þátt á sínu öðru kappskákmóti.
Næsta Bikarsyrpa (IV) verður haldin 1-3 apríl 2022
Hlökkum til að sjá ykkur!
Fleiri myndir eru á facebook síðu Taflfélags Reykjavíkur – Skákforeldrar
Síðasta Bikarsyrpa (10-12 desember)