Magnús Sigurjónsson sigraði á síðastliðnu fimmtudagsmóti í TR með fullu húsi og einum og hálfum vinningi fyrir ofan næsta mann. Glæsilegu Reykjavíkurskákmóti lauk í gær og vantaði að vonum ýmsar fastahetjur fimmtudagsmótanna sem voru með þar. Aftur á móti mætti sprækur hópur úr Laugalækjaskóla til að hita upp fyrir Íslandsmót grunnskólasveita sem verður einmitt í Faxafeninu um helgina. Mikið um að vera í skákinni um þessa dagana! Lokastaðan í gærkvöldi varð annars:
1 Magnús Sigurjónsson 7
2 Elsa María Kristínardóttir 5.5
3-4 Unnar Bachmann 4.5
Jón Páll Haraldsson 4.5
5-7 Gauti Páll Jónsson 4
Guðmundur Gunnlaugsson 4
Jóhann Bernhard, 4
8 Veronika Steinunn Magnúsdóttir 3.5
9-10 Óskar Long Einarsson, 3
Ingvar Vignisson 3
11-12 Arnar Ingi Njarðarson 2
Rafnar Friðriksson 2
13 Garðar Sigurðsson 1.5
14 Björgvin Kristbergsson 0.5