Rimaskóli og Engjaskóli sigurvegarar
Mánudaginn 6. desember kl. 17 fór Jólaskákmót Íþrótta-og tómstundaráðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur í eldri flokki fram. Það var fyrir nemendur úr 8.- 10. bekkjum grunnskóla Reykjavíkurborgar. Verðlaun voru fyrir þrjár efstu drengjasveitirnar (eða opnu sveitirnar, þar sem sveitirnar eru blandaðar stúlkum og drengjum) og þrjár efstu stúlknasveitirnar. Teflt var í einum flokki, 6 umferðir eftir Monradkerfi með 15. mínútna umhugsunartíma. 11 sveitir voru skráðar til leiks og þar af 1 stúlknasveit.
Í samanburði við þátttökuna í fyrra, þá voru sveitirnar tveimur færri en árið 2009 og athygli vakti að skólar sem tóku þátt í fyrra með góðum árangri voru ekki með að þessu sinni, svo sem Hólabrekkuskóli sem varð 2. sæti í fyrra, Fellaskóli, Ölduselsskóli og Hlíðaskóli. Álftamýrarskóli kom sterkur inn mótið að þessu sinni með tvær sveitir, svo og Rimaskóli sem ekki tók þátt í eldri flokknum í fyrra. Laugalækjarskóli var með tvær sveitir eins og Engjaskóli, sem var sá eini sem tefldi fram stúlknasveit. Hagaskóli var með þrjár sveitir að þessu sinni, en var með heilar 6 sveitir í fyrra, þar af eina stúlknasveit.
Nokkur einstefna var í þessum flokki, þar sem A-sveit Rimaskóla lagði hverja sveitina af fætur annari með fullu húsi! Sigurinn vannst örugglega með 24 vinningum af 24 og lét Ólafur H. Ólafsson skákstjóri þau orð falla í lok mótsins að aðeins í undantekningartilfellum hafi þetta gerst áður. En hann hefur séð um skákstjórn á þessum Jólamótum frá árinu 1982! Tveir drengir úr Rimaskólasveitinni áttu einmitt þátt í sams konar sigri Rimaskóla í yngri flokknum í fyrra! Það eru þeir Jón Trausti Harðarson og Dagur Ragnarsson sem nú tefldu á 1. og 2. borði.
Í öruggu 2. sæti var svo Laugalækjarskóli með 18 vinninga, sem tefldi fram “nýrri” sveit í þessum flokki, en Laugalækjarskóli vann þetta mót í fyrra með liðsmönnum sem að mestu leyti er komnir upp úr grunnskóla. Í þriðja sæti var svo A-sveit Hagaskóla með 13,5 vinning. Sveitirnar frá Hagaskóla setja alltaf skemmtilegan og segja má hátíðlegan svip á keppnina með sínum hefðbundna klæðnaði, en drengirnir mæta iðulega í hvítri skyrtu og með bindi eða slaufu á skákmótið.
Eins og áður sagði var einungis ein stúlknasveit með. Það er verðugt verkefni fyrir skólana að hvetja stúlkurnar á unglingastiginu til þátttöku í skákmótum og mæta með stúlknasveitir að ári liðnu til að auka keppni í stúlknaflokknum. Stúlkurnar úr Engjaskóla, með Elínu Nhung Reykjavíkurmeistarara stúlkna 2010 á 1. borði, sátu því einar að verðlaununum í stúlknaflokki að þessu sinni.
Jólaskákmótið fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur. Mótsstjóri var Soffía Pálsdóttir, ÍTR. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir. Birna Halldórsdóttir sá um veitingar á meðan mótinu stóð.
Heildarúrslit í eldri flokki (8.-10. bekkur) urðu sem hér segir:
1. Rimaskóli A-sveit 24 v. af 24.
2. Laugalækjarskóli A-sveit 18 v.
3. Hagaskóli A-sveit 13,5 v.
4. Laugalækjarskóli B-sveit 13 v.
5. Álftamýrarskóli B-sveit 12,5 v.
6. Hagaskóli C-sveit 12 v.
7. Rimaskóli B-sveit 11,5 v.
8. Engjaskóli A-sveit 10,5 v.
9. Álftamýrarskóli A-sveit 10 v.
10. Hagaskóli B-sveit 9,5 v.
11. Engjaskóli-stúlkur 9,5 v.
Rimaskóli A sveit:
- Jón Trausti Harðarson
- Dagur Ragnarsson
- Hrund Hauksdóttir
- Kristinn Andri Kristinsson
Laugalækjarskóli:
- Rafnar Friðriksson
- Garðar Sigurðarson
- Jóhannes Kári Sólmundarson
- Ingvar Ingvarsson
Hagaskóli A-sveit:
- Kristján Daði Finnbjörnsson
- Sindri Ingólfsson
- Ólafur Haraldsson
- Guðmundur Þ. Guðmundsson
1. varam. Fróði Guðmundsson
Engjaskóli-stúlkur:
- Elín Nhung Viggósdóttir
- Ásdís Aðalsteinsdóttir
- Arndís Einarsdóttir
- Filipia Geirsdóttir