Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 sunnudaginn 20. október kl. 14:00. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Swiss Perfect kerfi og er umhugsunartími 5 mínútur á skák.
Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Gagnaveitumótið – Haustmót T.R.
Núverandi Hraðskákmeistari T.R. er Daði Ómarsson.
- Bein útsending
- Úrslit, staða og pörun
- Skákir: 1 2 3 4 5 6 7 8
- Myndir