HM ungmenna: Tap í 8. umferð – mikil spenna á toppnum



Vignir Vatnar Stefánsson beið í gær lægri hlut fyrir búlgarska skákmanninum Matey Petkov í áttundu umferð HM ungmenna sem fer fram í Durban, S-Afríku. Vignir hefur 4,5 vinning og er í 33.-43. Sæti en fimm keppendur eru efstir með 6,5 vinning, þar af eru tveir Bandaríkjamenn. Fjórir keppendur hafa 6 vinninga og níu fylgja með 5,5 vinning.

Níunda umferð hefst í dag kl. 14 og þá hefur Vignir svart gegn Hvít-Rússanum, Kiryl Hrybchuk (1759).

  • Chess-Results
  • Heimasíða mótsins
  • Beinar útsendingar(mótssíða)
  • Beinar útsendingar (Chessdom)