Helgi Brynjarsson fór hamförum á fimmtudagsmóti TR sem fram fór í gærkvöld. Lagði hann alla sína níu andstæðinga og þar á meðal hraðskákmeistara TR, Kristján Örn Elíasson, sem átti ekkert svar gegn honum frekar en aðrir. Annar varð Kristján Örn með 7,5 vinning og Geir Guðbrandsson kom skemmtilega á óvart með 7 vinninga í þriðja sæti.
Úrslit:
- 1. Helgi Brynjarsson 9 v af 9
- 2. Kristján Örn Elíasson 7,5
- 3. Geir Guðbrandsson 7
- 4-5. Páll Sigurðsson, Þórir Benediktsson 5,5
- 6-7. Óttar Felix Hauksson, Jón Gunnar Jónsson 5
- 8. Dagur Kjartansson 4,5
- 9. Birkir Karl Sigurðsson 4
- 10. Tjörvi Schiöth 3,5
- 11. Finnur Finnsson 3
- 12. Benjamín Gísli Einarsson 2,5
- 13. Pétur Axel Pétursson 1
Næsta mót fer fram að viku liðinni en þá verða aukaverðlaun þar sem um fyrsta mót nóvember mánaðar er að ræða.