Tap hjá Vigni í sjöttu umferð



Vignir Vatnar Stefánsson tapaði fyrir rúmenskum skákmanni í sjöttu umferð Heimsmeistaramóts áhugamanna sem lauk rétt í þessu.  Vignir hafði unnið tvær skákir í röð en skákin í dag er hans önnur tapskák í mótinu en í báðum tilfellum stýrði hann svörtu mönnunum.  Vignir Vatnar stendur samt vel að vígi og er í 52.-88. sæti með 3,5 vinning þegar eftir eru þrjár umferðir.

 

Á morgun hefur hann hvítt gegn keppanda frá Moldóvu sem hefur 1926 stig og mun Vignir vafalaust tefla stíft til sigurs til að staðsetja sig ofar í töflunni fyrir lokasprettinn.  Rúmeninn Lehel Vrencian er enn efstur með fullt hús vinninga en tveir keppendur koma næstir með 5,5 vinning.

  • Skákir Vignis
  • Chess-Results
  • Heimasíða mótsins