Eiríkur K. Björnsson sigraði nokkuð örugglega (þó hann segi sjálfur frá) á fimmtudagsmóti í TR í gær. Þátttakendur voru ekki ýkja margir, enda Haustmót TR í gangi og telfdu allir við alla. Fyrir síðustu umferð var Eiríkur með fullt hús og þegar búin að tryggja sér sigur en Páll Andrason hafði betur gegn honum í lokaumferðinn og náði um leið sjálfur öðru sætinu. Úrslit urðu annars sem hér segir:
1 Eiríkur K. Björnsson 6
2 Páll Andrason 5
3-4 Unnar Þór Bachmann 4.5
Jón Úlfljótsson 4.5
5-6 Stefán Þór Sigurjónsson 3.5
Elsa María Kristínardóttir 3.5
7 Björgvin Kristbergsson 1
8 Finnur Kr. Finnsson 0