Dagur Andri vann öruggan sigur á síðastliðnu fimmtudagsmóti Taflfélags Reykjavíkur. Tefldar voru 11 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma. Fyrir síðustu umferðina hafði Dagur Andri lagt alla mótherja sína og hafði 2ja vinninga forskot á næsta mann, Matthías Pétursson. Í lokaumferðinni tapaði hann fyrir eina kvenkeppandanum og sigurvegara síðasta fimmtudagsmóts, Elsu Maríu Kristínardóttur, en það kom ekki að sök þar sem hann hafði þegar tryggt sér sigur í mótinu.
Glæsileg frammistaða hjá Degi Andra sem fékk 10 vinninga úr 11 umferðum.
1 Dagur Andri Friðgeirsson 10 v af 11
2 Matthías Pétursson 9
3 Elsa María Kristínardóttir 8
4 Eiríkur Björnsson 7.5
5-6 Kristján Örn Elíasson 7
Helgi Brynjarsson 7
7 Jón Úlfljótsson 5.5
8 Jon Olav Fivelstad 4
9 Ingi Þór Hafdísarson 3.5
10 Tjörvi Schiöth 2.5
11 Pétur Axel Pétursson 2