Daði Ómarsson (2091) beið lægri hlut fyrir rúmenska Fide meistaranum, Anton Teodor (2379), í annarri umferð á EM ungmenna sem fram fór í gær. Daði, sem hefur 1 vinning, mætir Ítalanum, Giacchetti Lorenzo (1818), í þriðju umferð sem fram fer í dag og hefst kl. 13.
Sex önnur íslensk ungmenni taka þátt í mótinu ásamt Daða:
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Sigríður Björg Helgadóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Hrund Hauksdóttir, Dagur Andri Friðgeirsson og Jón Kristinn Þorgeirsson.
Jón Kristinn, Dagur Andri og Hallgerður Helga unnu í 2. umferð en Hallgerður og Sigríður tefldu innbyrðis. Þau hafa öll 1 vinning en Sigríður, Jóhanna og Hrund eru ekki komin á blað.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results