Daði Ómarsson sigraði með yfirburðum á fimmtudagsmóti gærkvöldsins. Menn voru óvenju skákþyrstir að þessu sinni og tefldu allir við alla eða 11 umferðir og sigraði Daði alla sína andstæðinga. Í öðru til þriðja sæti með 8,5 vinning urðu síðan Helgi Hauksson og hinn ungi og efnilegi Páll Andrason sem hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu.
Úrslit:
- 1. Daði Ómarsson 11 v af 11
- 2.-3. Helgi Hauksson, Páll Andrason 8,5
- 4. Kristján Örn Elíasson 7,5
- 5. Ingi Tandri Traustason 6,5
- 6.-7. Jón Gunnar Jónsson, Guðmundur Kristinn Lee 6
- 8. Helgi Stefánsson 3,5
- 9. Andri Gíslason 3
- 10. Benjamín Gísli Einarsson 2,5
- 11. Pétur Axel Pétursson 2
- 12. Tjörvi Schiöth 1