Borgarskákmótið fer fram miðvikudaginn 21. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn að mótinu.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis en skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst til að liðka fyrir mótshaldi.
Þetta er í 34. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Helgi Áss Grétarsson, sem þá tefldi fyrir Hlaðbæ Colas.
Verðlaun:
1.sæti 30.000 kr.
2.sæti 20.000 kr.
3.sæti 10.000 kr.
Upplýsingar um skráða keppendur eru hér