Author Archives: Gauti Páll Jónsson

Jon Olav sigursæll á þriðjudagsmótum!

jolav

Jon Olav Fivelstad fékk þrjá og hálfan vinning af fjórum á þriðjudagsmóti þann 2. febrúar síðastliðinn. Er þetta annað sinn á stuttum tíma sem hann vinnur þriðjudagsmót. Næstur varð Þorsteinn Magnússon eldri með þrjá vinninga. Átta skákmenn mættu til leiks, og hugsanlega fer þeim að fjölga nú þegar Skákþinginu fer að ljúka. Úrslit mótsins má nálgast á chess-results.

Lesa meira »

Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld

20180909_150243

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er ...

Lesa meira »

Þriðjudagsmót hjá TR í kvöld

20180909_150243

Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er ...

Lesa meira »

Hjálmar efstur á þriðjudagsmóti

hjalmar

Það var fámennt en afar góðmennt á fyrsta þriðjudagsmóti ársins yfir borðinu. Hjálmar Hrafn Sigurvaldason stóð sig vel, og fékk fjóra vinninga, fullt hús. Næstur varð annar félagi í Vinaskákfélaginu, Hörður Jónasson, með þrjá vinninga, og Helgi Hauksson fékk tvo. Úrslit mótsins. Næsta mót verður í kvöld, á sjálfum skákdeginum, á 86 ára afmæli Friðriks Ólafssonar!  

Lesa meira »

TR treyjur til sölu fyrir félagsmenn

tr-a

Kæru félagsmenn! TR-ingar geta pantað sé glænýjar treyjur merktar félaginu í gegnum þetta skráningarform. Verð 5500 og stærðir eru 11-12, 13, xs,m,l, xl.  

Lesa meira »

Þriðjudagsmót í raunheimum annað kvöld

IMG_9661

Atskákmót hjá TR þriðjudaginn 19. jaúnar. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er ...

Lesa meira »

TR-ingar Íslandsmeistarar unglingasveita 2020!

tr-4

Íslandsmót unglingasveita 2020 fór fram í dag í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og Skákskóla Íslands í Faxafeni 12. Mótið átti upphaflega að fara fram í byrjun desember, en vegna sóttvarnarreglugerða, sem við öll erum vön að taka tillit til, var ekki hægt að halda mótið á tilsettum tíma. Nú á nýju ári rýmkuðust sóttvarnarreglurnar og þá opnaðist gluggi til að halda ...

Lesa meira »

Þriðjudagsmót á netinu í kvöld

IMG_9661

Þriðjudagsmót á netinu klukkan 19:30 í kvöld. Tefldar verða fjórar atskákir með tímamörkunum 15+5. Allir velkomnir. Hlekkur á Team Iceland  Hlekkur á mótið sjálft 

Lesa meira »

Skákþing Reykjavíkur hefst á sunnudaginn

umf5_1

Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 17. janúar kl. 13.00. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Dagskrá 1. ...

Lesa meira »

Stúlknaæfingar TR hafnar

stulknaaefing

Stúlknaskákæfingar Taflfélags Reykjavíkur héldu áfram eftir jólafríið, 9. janúar síðastliðinn. Átta einbeittar og áhugasamar stúlkur mættu á þessa fyrstu skákæfingu ársins 2021. Til viðbótar við þær sem hafa stundað skákina í nokkur ár, bættust nokkrar í hópinn í dag, meðal annars systur og vinkonur. Allar kunnu þær mannganginn, þannig að þeim var ekkert að vanbúnaði að kynnast meiri töfrum á skákborðinu. Nóg ...

Lesa meira »

Þriðjudagsmót á netinu í kvöld

IMG_9661

Þriðjudagsmót á netinu klukkan 19:30 í kvöld. Tefldar verða fjórar atskákir með tímamörkunum 15+5. Allir velkomnir. Hlekkur á Team Iceland  Hlekkur á mótið sjálft 

Lesa meira »

Skákæfingar hjá TR hafnar

20180909_150243

Nú eru skákæfingar hafnar hjá TR, fyrir vorið 2021. Boðið er upp á mannganskennslu, byrjendaæfingu, stúlknaæfingu, framhaldsflokk og afreksflokk. Upplýsingar um æfingarnar  Skráningarform 

Lesa meira »

Skákþingi Reykjavíkur frestað

rvk

Skákþingi Reykjavíkur er frestað um óákveðinn tíma vegna Covid-19. Frá þriðjudeginum 5. janúar hefjast þriðjudagsmótin á chess.com á ný, eftir jólafrí.

Lesa meira »

Vignir Vatnar Jólahraðskákmeistari TR 2020

IMG_0047

Fide meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson vann Jólahraðskákmót TR með fullu húsi 11 vinninga af 11, en mótið fór fram á chess.com þriðjudagskvöldið 29. desember. Fyrir samtímalesendur: Þið vitið af hverju mótið var haldið á netinu. Fyrir framtíðarlesendur: mótið var haldið á netinu vegna skæðrar veiru sem að geisaði um samfélagið árið 2020 (allavega). Næstur á eftir Vigni urðu Gunnar Freyr ...

Lesa meira »

Jólahraðskákmót TR í kvöld!

IMG_9661

Jólahraðskákmót TR fer fram í kvöld klukkan 19:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Teflt er í gegnum Team Iceland á chess.com. Núverandi jólahraðskákmótmeistari TR er Björn Ívar Karlsson. Hlekkur á mótið

Lesa meira »

Davíð Kjartansson Atskákmeistari Reykjavíkur 2020

9-5

Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson vann atskákmót Reykjavíkur sem fram fór á chess.com síðastliðinn þriðjudag með fullu húsi, sjö vinninga af sjö mögulegum.  Er þetta hans fyrsti atskákmeistaratitill. Næstur varð Fide-meisarinn Guðmundur Gíslason með sex vinninga og í þriðja sæti varð Þorsteinn Magnússon (eldri) með fimm vinninga. 15 skákmenn tóku þátt í mótinu. Lokastöðuna, skákirnar og öll úrslit má nálgast hér. Atskákmeistarar ...

Lesa meira »

Jólakveðja frá Taflfélagi Reykjavíkur

jolakerti

Taflfélag Reykjavíkur óskar skákmönnum nær og fjær gleðilegra jóla, og farsældar á nýju ári. Það er óskandi að skákmótahald geti hafist á venjulegan hátt sem fyrst. Sunnudags- og þriðjudagsmótin fara nú í örlítið jólafrí, en síðasta skákmót ársins hjá Taflfélaginu verður Jólahraðskákmót TR, á chess.com, þriðjudagskvöldið 29. desember næstkomandi klukkan 19:30. Á nýju ári er stefnt að því að koma verkefninu ...

Lesa meira »

Atskákmót Reykjavíkur á netinu í kvöld!

IMG_9661

Atskákmót Reykjavíkur fer fram á chess.com í kvöld, þriðjudagskvöldið 22. desember, klukkan 19:30. Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 10+5.  Teflt er í gegnum hópinn Team Iceland. Sigurvegari mótsins fær í verðlaun hina glæsulega skákævisögu Friðriks Ólafssonar. Skákirnar verða skoðaðar að móti loknu, þess til staðfestingar að allir hafi teflt heiðarlega! Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Arnar Gunnarsson. Skráningarform  Þegar skráðir keppendur  Hlekkur ...

Lesa meira »

Skráning hafin á æfingar vorannar.

IMG_20191124_105138

Skráning er hafin á barna- og unglingaæfingar TR fyrir vorönnina 2021. Æfingar hefjast mánudaginn 4. janúar en sem fyrr er boðið upp á manngangskennslu, byrjendaæfingar, stúlknaæfingar, framhaldsæfingar og afreksæfingar. Félagið býður nú TR-krökkum upp á treyjur merktar félaginu. Hér eru nánari upplýsingar um æfingarnar, tímasetningar og þjálfara. Skráningarform

Lesa meira »