Aron Ellert var að klára snyrtilegan sigur sinn í 3. umferð hér í Mysliborz. Allir piltarnir eru því komnir með 2 vinninga, fyrir utan Daða og Matta sem enn sitja að tafli.
Daði ætti að vinna – hann er þremur peðum yfir í riddaraendatafli þar sem þó eru smá jafntelishætta.
Matti er síðan búinn að rétta aðeins úr kútnum. Hann virtist lenda í vandræðum í byrjuninni (sem var óvenjuleg útgáfa af Grjótgarðsafbrigðinu í Hollendingnum) og var orðinn langt á eftir í liðsskipan. Þetta verður því sennilega nokkuð lærdómsrík skák, sama hvernig fer.
Torfi Leósson