Meistaramót Truxva fer fram á morgun!



Ingvar Wu, Jóhann, Vignir og Hilmir, verðlaunahafar á mótinu 2023.

Ingvar Wu, Jóhann, Vignir og Hilmir, verðlaunahafar á mótinu 2023.

Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 20. maí, annan í hvítasunnu, í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í áttunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30. (ath. klukkutíma fyr en vanalega með hraðskákmót í TR)

Tefldar verða 11 eða 13 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Verðlaun:

  • 1.sæti 25.000 kr.
  • 2.sæti 15.000 kr.
  • 3.sæti 10.000 kr.
  • U2000 Bókaverðlaun
  • Efsta TR-ungmennið Bókaverðlaun

Meistaramótið markar lok starfsárs ungmennahreyfingar Taflfélags Reykjavíkur. Margir af sterkustu hraðskákmönnum þjóðarinnar taka þátt. Sigurvegarar fyrri móta:

Verðlaun skiptast eftir Hort kerfinu.

Þátttökugjald er 1000kr fyrir fullorðna en 500kr fyrir 17 ára og yngri. Ókeypis fyrir IM og GM. Skráning í mótið fer fram í gegnum hefðbundið skráningarform.

Skráningarform 

Þegar skráðir keppendur