Torfi Leósson hraðskákmeistari T.R. 2009



Síðastliðinn sunnudag fór fram Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur sem er haldið ár hvert í kjölfar Haustmótsins.  Jafnframt fór fram verðlaunaafhending fyrir umrætt Haustmót.

Metþátttaka var að þessu sinni en 49 keppendur tóku þátt.  Tefldar voru 2×7 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma og fóru leikar þannig að Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði með 12 vinninga og fylgdi þar með eftir sigri sínum í Haustmótinu.  Sigurinn var þó ekki eins öruggur og þar því þrír skákmenn komu næstir með 11 vinninga, þeir Arnar Þorsteinsson, Torfi Leósson og Patrekur Maron Magnússon sem sigraði einmitt í b-flokknum á Haustmótinu.

Torfi Leósson er því Hraðskákmeistari T.R. 2009 þar sem hann varð efstur TR-inga.    Torfi hefur einu sinni áður hampað titlinum en það var árið 2004.  Skammt á eftir honum kom nýkrýndur Skákmeistari T.R., Sigurður Daði Sigfússon með 9,5 vinning.

Hér má finna myndir frá hraðskákmótinu og verðlaunaafhendingu fyrir Haustmótið.  Jóhann H. Ragnarsson tók myndirnar.

Lokastaðan:

 

1 Hjörvar Steinn Grétarsson, 12
2.-4 Arnar Þorsteinsson, 11
  Torfi Leósson, 11
  Patrekur Maron Magnússon, 11
5 Smári Rafn Teitsson, 10
6.-8 Sigurður Daði Sigfússon, 9,5
  Halldór Grétar Einarsson, 9,5
  Helgi Brynjarsson, 9,5
9.-14 Kristján Örn Elíasson, 9
  Stefán Bergsson, 9
  Páll Sigurðsson, 9
  Elsa María Kristínardóttir, 9
  Magnús Matthíasson, 9
  Páll Andrason, 9
15 Þór Valtýsson, 8,5
16.-21 Guðmundur K Lee, 8
  Jón Úlfljótsson, 8
  Oliver Aron Jóhannesson, 8
  Eyjólfur Emil Jóhannsson, 8
  Sverrir Freyr Kristjánsson, 8
  Kristján Helgi Magnússon, 8
22.-24 Eiríkur K Björnsson, 7,5
  Stefán Már Pétursson, 7,5
  Alexander Már Brynjarsson, 7,5
25.-26 Andri Jökulsson, 7
  Donika Kolica, 7
27 Örn Leó Jóhannesson, 6,5
28.-37 Jóhann  Bernhard Jóhannss, 6
  Róbert Leó Jónsson, 6
  Vignir Vatnar Stefánsson, 6
  Björgvin Kristbergsson, 6
  Sigurður Kjartansson, 6
  Friðrik Smárason, 6
  Þröstur Smári Kristjánsson, 6
  Sævar Atli Magnússon, 6
  Eysteinn Högnason, 6
  Aron Pétur Árnason, 6
38 Dawid Kolka, 5,5
39.-43 Arditbakiqi, 5
  Kristjófer Jóel Jóhanness, 5
  Heimir Páll Ragnarsson, 5
  Snæþór Bjarnason, 5
  Pétur Jóhannesson, 5
44.-47 Bjarni Þór Kristjánsson, 4
  Georg Fannar Þórðarson, 4
  Ólafur Örn Ólafsson, 4
  Emilía Johnsen, 4
48 Viktor Ásbjörnsson, 3,5
49 Gabríela Íris Ferreira, 3