Fern gull til barna úr TR á Íslandsmóti ungmenna



Um síðastliðna helgi fór fram í Rimaskóla Íslandsmót ungmenna þar sem keppt var í nokkrum aldursflokkum. Flottur hópur barna frá mismunandi skákfélögum tók þátt og voru öflugir fulltrúar frá Taflfélagi Reykjavíkur þar á meðal.

Íslandsmeistari stúlkna 9-10 ára 2017. Batel Goitom Haile.

Íslandsmeistari stúlkna 2017 í flokki 9-10 ára. Batel Goitom Haile.

Í eina stúlknaflokki mótsins, 9-10 ára (2007-2008), voru stelpur úr TR um helmingur keppenda. Stóðu þær sig alveg frábærlega og röðuðu sér í fimm af sex efstu sætunum, þ.á.m. þrjú efstu þar sem Batel Goitom Haile varð efst og þar með Íslandsmeistari stúlkna en silfrið hlaut Anna Katarína Thoroddsen og bronsið féll í skaut Soffíu Berndsen. Skammt undan komu síðan Iðunn Helgadóttir, Katrín María Jónsdóttir og Karen Ólöf Gísladóttir.

Íslandsmeistari barna 8 ára og yngri 2017. Bjartur Þórisson.

Íslandsmeistari barna 2017 í flokki 8 ára og yngri. Bjartur Þórisson.

Í yngsta aldursflokknum (2009 og yngri) varð Bjartur Þórisson Íslandsmeistari og þá stóð hinn ungi Jósef Omarsson (f. 2011) sig feykivel og lauk keppni í fjórða sæti af tæplega tuttugu keppendum og sama má segja um Emil Kára Jónsson (f. 2010) sem endaði vel fyrir ofan miðju.

Íslandsmeistari barna 11-12 ára 2017. Róbert Luu.

Íslandsmeistari barna 2017 í flokki 11-12 ára. Róbert Luu.

Íslandsmeistari stúlkna 2017 í flokki 11-12 ára. Freyja Birkisdóttir.

Íslandsmeistari stúlkna 2017 í flokki 11-12 ára. Freyja Birkisdóttir.

Þriðji Íslandsmeistarinn keppti svo í mjög sterkum flokki 11-12 ára (2005-2006) en það var hinn reynslumikli Róbert Luu sem kom í mark vinningi á undan næsta keppanda. Alls komu sex keppendur í þessum flokki úr TR og í honum landaði Freyja Birkisdóttir fjórða titlinum þar sem hún var efst stúlkna í flokknum.

Silfurhafinn í flokki 9-10. Adam Omarsson.

Silfurhafinn í flokki 9-10 ára. Adam Omarsson.

Í opna flokki 9-10 ára átti TR líka sína fulltrúa og var Adam Omarsson efstur af þeim en hann gerði sér lítið fyrir og krækti í silfrið, aðeins hálfum vinningi á eftir efsta keppandanum.

Allt eru þetta krakkar sem hafa verið mjög iðnir við kolann að undanförnu og því engin tilviljun að hópurinn hafi farið heim með fjölda verðlaunapeninga í farteskinu. Við í TR óskum þeim til hamingju með glæsilegan árangur og fylgjumst spennt með framgangi þeirra við skákborðin á næstu misserum.