Skákþing Reykjavíkur hefst í dag kl. 13



Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 5. janúar kl. 13.00. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu.

Dagskrá

1. umferð sunnudag 5. janúar kl. 13.00
2. umferð miðvikudag 8. janúar kl. 19.30
3. umferð sunnudag 12. janúar kl. 13.00
4. umferð miðvikudag 15. janúar kl. 19.30
5. umferð sunnudag 19. janúar kl. 13.00
6. umferð miðvikudag 22. janúar kl. 19.30
7. umferð sunnudag 26. janúar kl. 13.00
8. umferð miðvikudag 29. janúar kl. 19.30
9. umferð sunnudag 2. febrúar kl. 13.00

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram miðvikudaginn 5. febrúar kl. 19.30 og verður þá jafnframt verðlaunaafhending fyrir Skákþingið.

Tímamörk

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina

Skákstjórn

IA Ólafur Ásgrímsson (s. 895 5860) & FA Jon Olav Fivelstad (s. 897 1864)

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 100.000
  • 2. sæti kr. 50.000
  • 3. sæti kr. 30.000

Aukaverðlaun

  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (2000+): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (u2000): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (u1600): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (u1200): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (stigalausir): kr. 10.000. (Miðað er við 1000 stig hjá stigalausum).

Keppandi getur aðeins hlotið ein verðlaun.

Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.

Þátttökugjöld (greiðist með reiðufé við upphaf móts).

kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn TR).

Skráningarform

Skráðir keppendur

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2020 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Hjörvar Steinn Grétarsson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 12.45.