Skákþing Reykjavíkur 2014



Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 5. janúar kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram tvisvar í viku, á miðvikudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.Sú nýbreytni verður að boðið er upp á tvær yfirsetur (bye) í umferðum 2-6. Keppandi skal leggja inn skriflega beiðni um yfirsetu til skákstjóra í síðasta lagi við upphaf umferðarinnar á undan. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Dagskrá:

1. umferð sunnudag 5. janúar kl. 14
2. umferð miðvikudag 8. janúar kl. 19.30
3. umferð sunnudag 12. janúar kl. 14.00
4. umferð miðvikudag 15. janúar kl. 19.30
5. umferð sunnudag 19. janúar kl. 14.00
6. umferð miðvikudag 22. janúar kl. 19.30
7. umferð sunnudag 26. janúar kl. 14
8. umferð miðvikudag 29. janúar kl. 19.30
9. umferð sunnudag 2. febrúar kl. 14

Verðlaun:

1. sæti kr. 100.000

2. sæti kr. 50.000

3. sæti kr. 25.000

Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1600 skákstigum – bókaverðlaun (íslensk stig gilda)

Besti árangur stigalausra – bókaverðlaun

Þátttökugjöld:

kr. 5.000 fyrir 16 ára og eldri
kr. 2.500 fyrir 15 ára og yngri

Keppt er um titilinn “Skákmeistari Reykjavíkur 2014” og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Davíð Kjartansson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt, en stigaútreikningur látinn skera úr um verðlaunasæti.  Í aukaverðlaunaflokkum ganga verðlaun óskipt til þess, sem hefur flest stig eftir stigaútreikning.

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur.  Hægt er að fylgjast með skráningu hér.

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Athugið að skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 13.45.