Skákmót öðlinga hefst 21. mars



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 21. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.

Skákmót öðlinga verður nú haldið í 21. sinn. Sigurvegari á Skákmóti öðlinga 2011 var Þorsteinn Þorsteinsson.

Dagskrá:

  • 1. umferð miðvikudag 21. mars kl. 19.30
  • 2. umferð miðvikudag 28. mars kl. 19.30
  • Hlé gert á mótinu vegna Páska
  • 3. umferð miðvikudag 11. apríl kl. 19.30
  • 4. umferð miðvikudag 18. apríl kl. 19.30
  • 5. umferð miðvikudag 25. apríl kl. 19.30
  • 6. umferð miðvikudag 2. maí kl. 19.30
  • 7. umferð miðvikudag 9. maí kl. 19.30

Mótinu lýkur miðvikudaginn 16. maí kl. 19:30 með hraðskákmóti og verðlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar,en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

Þátttökugjald er kr. 4.000 fyrir aðalmótið og kr 500 fyrir hraðskákmótið. Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi.

Skráning fer fram á skráningarformi á heimasíðu T.R.