Skákæfingar Taflfélags Reykjavíkur á haustönn 2018 – Skráning hafin!



Skákæfingar Taflfélags Reykjavíkur eru fjölbreyttar og sérstaklega hannaðar til þess að mæta þörfum sem flestra áhugasamra skákbarna og unglinga. Á æfingum félagsins fá nemendur markvissa kennslu og persónulega leiðsögn sem nýtist þeim sem grunnur að framförum í skáklistinni. Sem fyrr er þjálfarateymi félagsins skipað mörgum af reynslumestu skákkennurum landsins.

Skákkennsla á haustönn 2018 verður með hefðbundnu sniði frá því sem verið hefur undanfarin misseri. Stundataflan helst óbreytt frá síðastliðnu vori. Æfingagjöld eru 9.000kr fyrir æfingahópa sem hittast einu sinni í viku en 16.000kr fyrir æfingahópa sem eru tvisvar í viku. Systkinaafsláttur er veittur í formi 25% afsláttar fyrir annað barnið, en þriðja barnið æfir frítt. Auk þess fá stúlkur 50% afslátt af stúlknaæfingum ef þær eru jafnframt á framhaldsæfingum eða byrjendaæfingum.

Mikilvægt er að skrá þátttakendur á æfingarnar með því að fylla út skráningarform sem finna má á vef félagsins. Öllum er þó frjálst að prófa eina æfingu án skuldbindingar. Aðstandendur geta nýtt sér Frístundakort Reykjavíkurborgar fyrir börn/unglinga sem eru með lögheimili í Reykjavík. Athygli er vakin á því að ekki þarf að skrá börn í manngangskennslu.

Allar nánari upplýsingar sem og leiðbeiningar um hvaða æfingar henta hverjum og einum veita skákþjálfarar félagsins.

Á haustönn 2018 er boðið upp á fimm mismunandi skákæfingar; Manngangskennslu, byrjendaæfingu, stúlknaæfingu, framhaldsæfingu og afreksæfingu.

 

Manngangskennsla: Lau kl.10:40-11:00 (frítt) –Hefst 1.september.

Á þessari æfingu verður eingöngu manngangurinn kenndur. Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem vilja læra mannganginn frá grunni eða vilja læra tiltekna þætti manngangsins betur. Börnin munu læra að hreyfa alla mennina auk þess sem þau læra reglur sem gilda um hrókeringu og framhjáhlaup. Þegar barn hefur náð góðum tökum á mannganginum að mati skákþjálfara þá er það tilbúið að taka næsta skref sem er Byrjendaæfing. Ekki þarf að skrá börn sérstaklega í manngangskennslu. Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).

 

Byrjendaæfing: Lau kl.11:15-12:15 (9.000kr) –Hefst 1.september.

IMG_4470Þessi æfing er hugsuð fyrir börn á grunnskólaaldri og elstu börn leikskóla, af báðum kynjum, sem kunna allan mannganginn og þyrstir í að læra meira og ná betri tökum á skáklistinni.

Á æfingunni tefla börnin hvert við annað í bland við létta kennslu. Börnin læra almennar reglur sem gilda á skákmótum og þau venjast því að tefla með klukku. Auk þess munu börnin læra grunnatriði á borð við liðsskipan og einföld mát.

Umsjón með æfingunum hefur Torfi Leósson (sími: 697 3974).

 

 

Stúlknaæfing: Lau kl.12:30-13:45 (9.000kr) –Hefst 8.september.

39309634_10156711895903675_7918614058125754368_n

Í haust verður stúlknaskákæfingin á sínum stað 7. árið í röð. Allar stúlkur á grunnskólaaldri eru velkomnar að slást í hópinn.

Á skákæfingunum eru æfð ýmis taktísk atriði og mátstöður í miðtafli og endatafli. Lögð er áhersla á að stelpurnar þrói með sér skilning á stöðuuppbyggingu, svo sem liðsskipan í byrjun, úrvinnslu í miðtafli og læri að ljúka skákinni með máti.

Tímarnir innihalda sitthvað af öllu þessu: innlögn og umræður, skákþrautir og taflmennsku, sköpun og gleði.

Umsjón með æfingunum hefur Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (sími: 862 6290).

 

Framhaldsæfing:  Þri kl.17:00-18:30 & Sun kl.10:30-12:00 (16.000kr) –Hefst 28.ágúst.

39344538_519284161844993_1139412848913416192_nFramhaldsæfingin verður með svipuðu sniði frá því sem var síðastliðið vor. Æfingunni er ætlað að koma til móts við þau skákbörn TR, af báðum kynjum, sem hafa mikinn áhuga á að taka framförum í skáklistinni. Þessar æfingar eru hugsaðar fyrir börn sem hafa æft skák áður og hafa reynslu af að tefla í skákmótum.

Á æfingunum kynnast nemendur hugmyndum og nöfnum á helstu skákbyrjunum og hvernig útfæra eigi áætlun í miðtafli út frá byrjunartaflmennsku. Jafnframt verður lögð áhersla á að nemendur læri lykilatriði í endatöflum og geti sýnt fram á kunnáttu sína við taflborðið. Á æfingunum munu nemendur fylgjast með fyrirlestrum og kennslu þjálfara og leysa verkefni úr kennsluefninu bæði einir og sér og í hóp, á verkefnablöðum og við taflborð. Nemendur verða hvattir til þátttöku í skákmótum og leiðbeint um val á mótum. Jafnframt fá nemendur leiðbeiningar um hvernig þeir geti æft sig sjálfir heima, hafi þeir áhuga á. Æfingarnar eru á sunnudögum og þriðjudögum.

Umsjón með æfingunum hefur Björn Ívar Karlsson (sími: 692 1655).

 

Afreksæfing: Fim kl.17:00-18:30 (9.000kr) -Hefst 23.ágúst.

20180226_190133Afreksæfingin er hugsuð fyrir stigahæstu ungmenni TR af báðum kynjum. Lögð er mikil áhersla á byrjanafræði og krefjast æfingarnar þess að nemendur geti unnið sjálfstætt.

Æfingin verður með örlítið breyttu sniði frá því sem verið hefur undanfarin ár. Æft er einu sinni í viku, á fimmtudögum, en áður voru æfingar tvisvar í viku. Í stað seinni æfingarinnar verður haldið vikulegt skákmót fyrir afrekshópinn á laugardögum.

Umsjón með æfingunum hefur Daði Ómarsson (sími: 615 4273).