Helgina 12-14 júní fór fram fyrsta Sumarsyrpa TR sumarið 2026. Þrátt fyrir sólríka daga og mikinn hita voru keppendur tilbúnir að eyða helginni inni fastir við skákboriðið í Faxafeninu.
Sumarið er oft sá tími þegar dregið er úr taflmennsku en þessa helgina var samt sem áður góð mæting þar sem 39 keppendur voru skráðir til leiks.
Þrátt fyrir að allir gluggar væru opnir og loftkælingin í gangi var gífurlegur hiti inni í keppnisalnum stærsta hluta mótsins sem reyndi mikið á keppendur og minnti á erlendar keppnisaðstæður.
Eftir fyrstu umferðina á lokdeginum voru það Jóel Helmer og Emil Fenger sem leiddu báðir mótið með 4½
Í sjöttu umferð mættust Jóel Helmer og Emil. Eftir að hafa fengið öflugt tak á stöðunni fór Jóel aðeins of beinskeitt að opna stöðuna á miðborðinu og Emil Fenger kláraði skákina nokkuð sannfærandi í endataflinu.
Í lokaumferðinni var Emil Fenger einn efstur og mætti Dagur Sverrisson og Emil Fenger. Dagur tefldi vel og byggði upp góða stöðu en Emil sigraði skákina eftir smá flækjur í miðtaflinu.
Emil endaði einn efstur með 6½ vinning og fór ósigraður í gegnum mótið. Í öðru sæti kom Jóel Helmer með 5½ vinning eftir sigur sinn á Óðin Darra.
Síðasta skákin í lokaumferðinni var skákin Ringaudas og Katrín Ósk sem endaði í jafntefli í endataflinu. Ringaudas , Katrín Ósk og Eiður Jökulsson enduðu öll með 5 vinninga en Ringaudas reyndist efstur á oddastigum.
Mikil samkeppni var um stúlknaverðlauin og þær Miroslava og Likhithasri sem áttu báðar gott mót enduðu með 4½ vinning en Miroslava reyndist örlítið hærri á oddastigum.
🥇Emil Finnsson Fenger 6½
🥈Jóel Helmer Tobisasson 5½
🥉Ringaudas Skucas 5
🥇Katrín Ósk Tómasdóttir 5
🥈Miroslava Skibinia 4½ (22½)
🥉Likhithasri Sathiyaraj 4½ (21½)
Taflfélag Reykjavíkur vill þakka keppendum fyrir þátttöku á mótinu og vonast til að sjá sem flesta á
Næsta mót í Sumarsyrpuröðinni verður haldið helgina 10-12 júlí.
Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðu mótsins á Chess-results: Sumarsyrpu T.R I 2026
Hægt er að sjá myndir frá mótinu á ljósmyndasíðu Skáksambandsins Sumarsyrpu I 2026 | Flickr
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins





